Fara í efni

Þjóðlagatónar í Hvalsneskirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
þriðjudagur, 8 júlí
Hvar
Hvalsneskirkja
Klukkan

Þjóðlagatónar í Hvalsneskirkju

Dúó Stemma flytja íslenskar þjóðvísur, þulur og ljóð. Til þess nota þau ýmis hefðbundin hljóðfæri, eins og fiðlu, víólu marimbu, trommur og einnig óhefðbundin hljóðfæri og hljóðgjafa svo sem hrossakjálka, íslenska steina, barnaleikföng og svo syngja þau með sínu nefi.

DÚÓ STEMMA eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari. Þau hafa leikið saman í mörg ár og spilað fjölmarga tónleika á Íslandi og erlendis. Dúó Stemma hlaut viðurkenninguna „Vorvindar“ frá IBBY samtökunum árið 2008 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi. Vorið 2022 fengu þau styrk úr Barnamenningarsjóði til að spila víðsvegar um Evrópu fyrir íslensk börn á erlendri grundu.

Aðganseyrir er 3.500.- ókeypis fyrir 18 ára og yngri
Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja

3500

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær