Fara í efni

Svifvængja- og sportflug

4 niðurstöður

Absorb Iceland

Rósarimi 1, 112 Reykjavík

Absorb Iceland er íslenskur dagferðasali staðsettur í Reykjavík sem vottaður er af Ferðamálastofu Íslands og fer eftir öllum lögum og reglum í ferðaþjónustu á Íslandi.

Við sérhæfum okkur í einkaferðum innanlands þar sem ferðast er á afslappandi og ánægjulega vegu. Með okkar reynda leiðsögufólki færðu að upplifa allt sem Ísland og hrífandi náttúru þess hafa að bjóða, hvort sem er með stútfullri ferðaáætlun af fjöri eða rólegum og þægilegum degi.

Við elskum að sníða ferðir að þörfum gesta okkar til að gera upplifun þeirra af Íslandi einstaka og ógleymanlega um alla ævi. Við leggjum ávallt áherslu á að veita gestum okkar persónulega og vinalega þjónustu, svo þeim líði eins og þeir séu að skoða landið með vini. Þú getur alltaf haft samband við okkur til að byrja að skipuleggja dvöl þína á Íslandi með bestu mögulegu ferðaáætlun sem er útbúin sérstaklega fyrir þig.

Við búum í Reykjavík og höfum brennandi áhuga á Íslandi. Okkur finnst við svo lánsöm að hafa alist upp og búið í okkar frábæra landi og viljum deila þekkingu okkar og kunnáttu á landinu og öllum þeim undrum sem Ísland hefur upp á að bjóða með nýjum vinum okkar.

Þú ferðast í einkaferð með persónulegum leiðsögumanni og færð nákvæmari upplifun af Íslandi og náttúru þess, menningu og sögu. Þess vegna eru ferðirnar okkar einkaferðir svo gestir okkar fái persónulegri nálgun. starfsfólk okkar er staðbundið. 

Happyworld – Paragliding Iceland

Bláfjallavegur, 201 Kópavogur

Svifvængjaflug geta allir prófað með okkur! Smelltu þér í tvímenningsvæng með þrautþjálfuðum flugkennara og upplifðu frelsið! 

Happyworld – Paragliding Iceland hefur kennt svifvængjaflug á Íslandi (og erlendis) frá 2007 og erum við viðurkenndir svifvængjaflugkennarar í Fisfélagi Reykjavíkur (aðili að ÍBR og ÍSÍ). Árlega höldum við byrjendanámskeið um allt land ásamt því að bjóða kynningarflug í tvímenningsvæng á Bláfjallasvæðinu.

Markmið okkar er að kynna og efla þessa spennandi og fallegu útivist/íþrótt. Ísland býður upp á óskoraða náttúrufegurð og frelsi til flugs!

True Adventure

Víkurbraut 5, 870 Vík

True Adventure svifvængjaflug
Okkar ástríða er að fljúga svifvængjum og draumurinn er að gera sem flestum kleift að upplifa frjálst flug með okkur. True Adventure teymið vinnur hörðum höndum að því að gera Suðurland að Mekka svifvængjaflugs . Fjöldi fjalla og hagstæðir vindar gera Suðurlandið að einum ákjósanlegasta stað fyrir öruggt en spennandi flug á svifvængjum. 

True Adventure Teymið
Flugmenn okkar eru með reyndustu farþega flugmönnum landsins, þeir eyða svo miklum tíma á flugi að sumir eru farnir að telja þá til fulga. Vinsamlegast fóðrið ekki flugmennina! Í kynningarflugi ferðu í loftið sem nemandi með flugkennara True Adventure og þarft ekkert að læra fyrirfram. Þú færð létta kynningu á því hvernig svifvængurinn og flugið virkar. Það eina sem þú þarft svo að gera er að taka nokkur skref með kennaranum í flugtaki, njóta útsýnisins og frelsisins! Ef þú ert leita að ævintýri á Íslandi þá er True Adventure svarið. 

Lengd: ca. 1 klst.
Fatnaður: Klæðist hlýjum fötum, það er kaldara uppí í loftinu en á jörðinni.
Aldurstakmark: 12 ára.
Þyngd: 30 - 120 kg.
Mæting: Víkurbraut 5, Vík. Sama húsnæði og Súpufélagið og The Icelandic Lava Show.
Brottfarartímar: Kannið lausa tíma á vefnum okkar www.trueadventure.is
Verð: ISK 35.000kr. per person. 

Vakinn

Arctic Adventures

Skútuvogur 2, 104 Reykjavík

Arctic Adventures býður uppá eitt mesta úrval afþreyingarferða á Íslandi og eru starfsstöðvar þess víðsvegar um landið, m.a. í Reykjavík, við Sólheimajökul, í Skaftafelli og Húsafelli. Þær afþreyingarferðir sem Arctic Adventures býður upp á eru meðal annars jöklagöngur, íshellaferðir, köfun og yfirborðsköfun í Silfru, gönguferðir, hellaskoðun, vélsleðaferðir og hvalaskoðun. 

Arctic Adventures býður bæði upp á dagsferðir og lengri ferðir allt árið, auk þess að taka að sér prívatferðir, skóla- og fyrirtækjahópa. Arctic Adventures rekur einnig tvo hótel, Adventure Hótel Geirland við Kirkjubæjarklaustur og Adventure Hótel Hof í Öræfum.

Arctic Adventures er gæða- og umhverfisvottað af Vakanum, gæða og umhverfiskerfi ferðaþjónustu á Íslandi

Jöklagöngur á Sólheimajökli og frá Skaftafelli.

Gönguferðir í Landmannalaugum og Þórsmörk, auk Laugavegsins.

Íshellaferðir í Kötlujökli, Sólheimajökli, Langjökli, Falljökli og frá Jökulsárlóni.

Hellaferðir í Raufarhólshelli.

Köfun/yfirborðsköfun í Silfru á Þingvöllum.

Vélsleðaferðir á Langjökli.

Hvalaskoðun frá Dalvík.