Fara í efni

Zipline

5 niðurstöður

Iceland Activities

Mánamörk 3-5, 810 Hveragerði

Iceland Activities er fjölskyldufyrirtæki sem hefur gríðar mikla reynslu af ferðamennsku á Íslandi og spannar sú reynsla yfir 30 ár.

Við leggjum metnað okkar í að sýna fólki Ísland og Íslenska náttúru á annan hátt en aðrir gera, þannig að það tengist náttúrunni bæði með fræðslu og einnig með því að fara aðeins út fyrir fjölsóttustu svæðin þar sem náttúrufegurðin er jafnvel enn meiri en á hinum hefðbundu svæðum, og þar liggur styrkur okkar í því hversu vel við þekkjum Ísland. 

Við leggum mikinn metnað í allar okkar ferðir og höfum eitt markmið að leiðarljósi að fólk sem ferðast með okkur sé ánægt og upplifi sem mest.

Helstu ferðirnar sem við bjóðum uppá eru:

  • Fjallahjólamennsku og fjallahjólaferðir
  • Brimbrettaferðir og kennsla.
  • Gönguferðir.
  • Hellaferðir.
  • Jeppaferðir.
  • Snjóþrúguferðir
  • Starfsmannaferðir og hvataferðir
  • Skólaferðir
  • Zipline

Við erum staðsettir í Hveragerði rétt við þjóðveg eitt um 40 km frá Reykjavík.

Ferðirnar okkar henta mjög breiðum hópi bæði í aldri og getu þar sem þær eru allt frá rólegum fjölskylduferðum upp í adrenalin ferðir.

Zipline á Íslandi

Víkurbraut 5, 870 Vík

Zipline ævintýri í Vík í Mýrdal
Zipline ævintýri í Vík er frábær skemmtun fyrir ævintýraþyrsta fjörkálfa. Uppliufunin samanstendur af gönguferð um Grafargil með nokkrum skemmtilegum áningarstöðum og fjórum zipplínum, 30-240 metra löngum. Á þeim er sannkölluð salíbunuferð yfir stórbrotið langslag gilsins fyrir neðan. Ferðin er leiðsögð allan tíman með stórskemmtilegum leiðsögumönnum úr þorpinu sem eru mjög vel að sér í sögu staðarins og svæðinu allt um kring. 

Zipline öryggi
Zipline ferðin okkar er nokkuð auðveld fyrir flesta, það er gengið um kindastíga á ójöfnu landslagi á milli zipplínana sem við rennum okkur á yfir fossa og Víuránna í gilbotninum til að fá hjartað á smá hreyfingu undir öruggri handleiðslu leiðsögumannanna okkar. Línurnar okkar og allur búnaður er vottaður af óháðum evrópskum aðila og skartar CE vottun. 

Zipline gædar
Stofnendur Zipline, stundum leiðsögumenn, hafa öll það sameiginlegt að vera miklir heimshornaflakkarar og hafa áratugi af ævintýrum undir beltinu. Samanlagt hafa þau ferðast til flestra heimshorna og stundað ævintýri eins og svifvængjaflug, köfun, ísklifur, brimbretti og kayak ásamt fleiru.  

Zipline Reglurnar
Ferðin er um 1,5 - 2 klst. Gestirnir okkar þurfa að vera orðin 8 ára eða 30 kg. Markmið okkar er að eiga saman skemmtilega stund hvort sem það er fjölskylda, vinir eða stakir ferðalangar sem heimsækja okkur.  

Lengd ferðar: ca.1,5 - 2 klst.
Fatnaður: Klæðist eftir veðri, í gönguskóm og fléttið sítt hár.
Lágmarks aldur: 8 ára
Þyngd: 30 - 120 kg.
Mæting: Víkurbraut 5, Vík. Sama húsnæði og Súpufélagið og Icelandic Lava Show.
Brottfarartímar: Sjá tímasetningar og hvenær er laust á www.zipline.is
Verð: 14.900kr. á mann, börn í grunnskóla fá 50% afslátt í fylgd fullorðinna. Tilboð eru auglýst
á vefsíðunni.
Hópar: Hægt er að aðlaga tímasetningar að hópum, vinsamlegast sendi okkur tölvupóst fyrir kjör og hópabókanir: zipline@zipline.is 

   

Zipline Akureyri / ZipAk

Glerárgil við Hlíðarbraut , 600 Akureyri

Fimm sterkir stálvírar bíða eftir að zippa þér yfir iðandi á og snarbratta kletta við Glerá á Akureyri!

Leiðsögumenn leiða þig örugglega í gegnum ævintýralegt árgljúfur með ziplínum, léttum gönguferðum og misgáfulegum fróðleik.

Ferðin tekur um 1-2 klukkustundir, eftir hópastærð.

 

Megazipline Iceland

Þjónustuhús Árhólma, Ölfusdal, 810 Hveragerði

Mega Zipline er lengsta og hraðasta sviflína á Íslandi og þótt víðar væri leitað.

Línan er staðsett í Kömbunum við Hveragerði og fylgir Svartagljúfri frá efstu beygju í Kömbunum alveg niður að kaffihúsinu við upphaf gönguleiðarinnar inn í Reykjadal. Línurnar eru í raun tvær og liggja samhliða svo tveir geta tekið flugið í einu. 

Gilið er lítt þekkt náttúruperla sem skartar fallegum fossum og stórbrotnu útsýni. Móttaka er við kaffihúsið í Reykjadal (inn að Hveragerði) og í boði eru tvær mismunandi leiðir; Frjáls eins og fuglinn eða Fljótur eins og fálkinn. Mega Zipline Ísland er frábær fjölskylduskemmtun og órjúfanlegur hluti af ferðalagi um Suðurland.

Absorb Iceland

Rósarimi 1, 112 Reykjavík

Absorb Iceland er íslenskur dagferðasali staðsettur í Reykjavík sem vottaður er af Ferðamálastofu Íslands og fer eftir öllum lögum og reglum í ferðaþjónustu á Íslandi.

Við sérhæfum okkur í einkaferðum innanlands þar sem ferðast er á afslappandi og ánægjulega vegu. Með okkar reynda leiðsögufólki færðu að upplifa allt sem Ísland og hrífandi náttúru þess hafa að bjóða, hvort sem er með stútfullri ferðaáætlun af fjöri eða rólegum og þægilegum degi.

Við elskum að sníða ferðir að þörfum gesta okkar til að gera upplifun þeirra af Íslandi einstaka og ógleymanlega um alla ævi. Við leggjum ávallt áherslu á að veita gestum okkar persónulega og vinalega þjónustu, svo þeim líði eins og þeir séu að skoða landið með vini. Þú getur alltaf haft samband við okkur til að byrja að skipuleggja dvöl þína á Íslandi með bestu mögulegu ferðaáætlun sem er útbúin sérstaklega fyrir þig.

Við búum í Reykjavík og höfum brennandi áhuga á Íslandi. Okkur finnst við svo lánsöm að hafa alist upp og búið í okkar frábæra landi og viljum deila þekkingu okkar og kunnáttu á landinu og öllum þeim undrum sem Ísland hefur upp á að bjóða með nýjum vinum okkar.

Þú ferðast í einkaferð með persónulegum leiðsögumanni og færð nákvæmari upplifun af Íslandi og náttúru þess, menningu og sögu. Þess vegna eru ferðirnar okkar einkaferðir svo gestir okkar fái persónulegri nálgun. starfsfólk okkar er staðbundið.