Fara í efni

Selaskoðun

14 niðurstöður

Local tours ATV

Sandfellshaga 2, 671 Kópasker

Fjórhjólaferðir með leiðsögumanni um Norðausturland.

Smellið á facebook slóðina til að fá meiri upplýsingar. 

Skipuleggjum fjórhjólaferðir á norð-austurlandi út frá Ásbyrgi og fleiri stöðum

Endilega hafið samband og segið okkur hvernig ferð þið viljið fara í og hvert og við skipuleggjum draumaferðina fyrir ykkur. Lágmarks leiga fyrir hópaferðir eru 3 fjórhjól og 6 manns.

Ghaukur / North Wind

Melavegur 6, 530 Hvammstangi

Við bjóðum upp á fyrirfram skipulagðar ferðir og ferðir klæðskerasaumaðar að þínum óskum á Norðurlandi vestra.Við bjóðum upp á velbúna 14 eða 20 manna bíla með leiðsögumönnum á íslensku eða ensku.

Ferðir:
Náttúruskoðun í Húnaþingi vestra: Dagsferðir sem geta hafist á Akureyri, í Reykjavík eða á Hvammstanga. Á einum degi skoðum við það markverðasta í Húnaþingi vestra svo sem: Hvammstanga. Íllugastaði, Hvitserk, Borgarvirki, Kolugljúfur o. fl. Við sjáum íslensk dýr í sínu náttúrulega umhverfi svo sem seli og fugla í fylgd staðkunnugs leiðsögumanns. 

Á slóðum síðustu aftöku á Íslandi: Illugastaðamorðin sem leiddu til síðustu aftöku á Íslandi árið 1830 er mögnuð  og draamatísk saga full af ást, hatri og afbrýði. Komið í dagsferð frá Akureyri, Hvammstanga eða Reykjavík á slóðir þessara mögnuðu atburða í fylgd staðkunnugs leiðsögumanns sem gjörþekkir söguna og leiðir þig um þær slóðir þar sem hún átti sér stað. 

Viltu skipuleggja þína eigin dagsferð um Norðurland vestra fyrir vinahóp, vinnufélaga eða fjölskyldu. Við getum klæðskerasaumað ferð að þínum þörfum og óskum. Það er einfalt því Norðurland vestra hefur að geyma margar merkilegar faldar náttúruperlur og dýralíf sem heillar flesta.

Ferðaskrifstofan Nonni

Brekkugata 5, 602 Akureyri

Ferðaskrifstofan Nonni Travel ehf.,stofnað 1988, er staðsett við Ráðhústorgið í harta Akureyrar. Aðaláhersla er á skipulagningu ferða og móttöku erlenda gesta á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum.

  • Nonni Travel býður upp á gott úrval ferða og ýmsa afþreyingu.
  • Nonni Travel er sérhæfð í ráðgjöf og skipulagningu sérsniðinna ferða fyrir einstaklinga og hópa.
  • Nonni Travel hefur mikla reynslu í ráðstefnuhaldi og skipulagningu stærri funda.

Borea Adventures

Aðalstræti 17, 400 Ísafjörður

Borea Adventures á Ísafirði býður upp á ævintýraferðir með leiðsögn fyrir minni og stærri hópa.

Fyrirtækið á og rekur hraðbátinn Bjarnarnes sem flytur allt að 18 farþega í skipulögðum ferðum og sérferðum um Hornstrandir, Jökulfirði og Ísafjarðardjúp. Borea Adventures býður upp á ýmsar ferðir um friðlandið, þar sem gist er í tjöldum, tjaldbúðum í Hornvík eða í nýuppgerða eyðibýlinu á Kvíum í Jökulfjörðum. 

Borea Adventures býður upp á fjölbreytt úrval lengri ferða, sem og dagsferða út frá Ísafirði. Kayakferðir um ævintýralega firði Hornstranda og Jökulfjarða, fjölbreyttar göngur um Hornstrandir og nágrenni Ísafjarðar, skíðaferðir, fjallahjólaferðir og náttúruupplifanir. Einnig eru í boði sérferðir, sérsniðnar að þörfum þeirra sem okkur vilja heimsækja. 

Borea Adventures býr að einvala liði reynslumikilla og skemmtilegra leiðsögumanna, sem tryggja það að allir fari heim með bros á vör. 

Minna Knarrarnes

Minna Knarrarnes, 190 Vogar

65fm einsherbergis íbúð.  Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.

Kraftganga

Lækjargata 4, 101 Reykjavík

Kraftgöngutímar er ætlaðir fyrir fólk sem hefur færni til að ganga og þolir t.d. að ganga brekkur og þýft landslag.  Í tímunum er stefnt að því að vinna upp og/eða viðhalda þoli og styrk auk þess að viðhalda og auka teygjanleika.

Húsey HI Hostel & Hestaleiga / Farfuglaheimili

Húsey, 701 Egilsstaðir

Heimsókn í Húsey við Héraðsflóa er hrein náttúruupplifun. Víðsýni er mikið í Húsey og fagurt til allra átta. Selir liggja á eyrum fljótanna  Lagarfljóts og Jökulsár á Brú. Þarna er að sjá marga fugla t.d. kjóa, skúm og lóminn. Oft má líka sjá hreindýr. Best af öllu er að njóta náttúrunnar á hestbaki en farið er daglega í selaskoðun á hestbaki kl 10:00 og 17:00. Nauðsynlegt er að hringja á undan sér.

Húsey HI Hostel & Hestaleiga / Farfuglaheimili er til húsa í gamla íbúðarhúsinu sem var endurnýjað til þeirra nota. Þar er hægt að gista og góð eldunaraðstaða fyrir hendi. Þar er einfalt heimilislegt húsnæði með sameiginlegum baðherbergjum, eldhúsi, stofu og glerhúsi.

Hestaferðir Húsey
Heimsókn í Húsey við Héraðsflóa er hrein náttúruupplifun. Hundruð sela liggja á eyrum í Jöklu, lómurinn verpir í tugatali, þarna er eitt stærsta kjóavarp í heimi og skúmurinn gerir reglulegar loftárásir á ferðamenn.

Best af öllu er að njóta einstakrar náttúru af hestbaki, en farið er daglega í selaskoðun kl. 10 og kl. 17 og tekur um 2 klst. Nauðsynlegt er að hringja á undan sér. Einnig er boðið uppá lengri reiðtúra, 4 klst meðfram ánum.

Húsey er fornfrægt býli á undirlendinu í millum tveggja fallvatna úti við Héraðsflóa, Jökulsár á Brú og Lagarfljóts. Býlið er einkum þekkt með þjóðinni fyrir náttúrufar og dýralíf, einkum seli, fugla og hreindýr. Líkast er Húsey einn fárra staða í víðri veröld þar sem unnt er að panta selaskoðun á hestbaki! 

Ögur Travel

Ögur Ísafjarðardjúpi, 401 Ísafjörður

Ögur Travel er staðsett í Ögri við Ísafjarðardjúp, 106 km frá Ísafirði. Tímabilið hjá okkur hefst í lok maí og er út september. Farið er í ferðir allt árið ef pantað er með fyrirvara. Kaffi- og veitingasala á staðnum frá miðjum júní. Við getum útvegað svefnpokapláss en að öðru leyti vísum við fólki á gistingu í Reykjanesi, Heydal, Ísafirði, Dalbæ og víðar. Ögur Travel getur útbúið heildarpakka með ferðum, gistingu, veitingum og nesti. Frítt er fyrir 15 ára og yngri í gönguferðir. Tungumál er íslenska, enska og Norðurlandamál (sænska og danska). Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar.

Brekkulækur

Brekkulækur, 531 Hvammstangi

Fjölbreytt ferðaþjónusta er rekin á sveitabænum Brekkulæk í Miðfirði. Í gegnum árin höfum við skipulagt hestaferðir yfir hálendi Íslands ásamt gönguferðum þar sem áhersla er lögð á náttúru Íslands og sveitina. 

Brekkulækur býður upp á gistingu, veitingar og afþreyingu. Fuglaskoðunarferðir í júní. Hestaferðir og gönguferðir í júní-ágúst. Náttúruskoðunarferðir með lítilsháttar klifri og hellaskoðun. Haustferðir þar sem m.a. er farið í réttir.

Vinsamlegast hafið samband vegna verðlista og bókana.

Endilega heimsækið okkur hér.

Prime Tours

Smiðshöfði 7, 110 Reykjavík

Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.

Hótel Heydalur

Mjóifjörður, 420 Súðavík

Sveitahótelið Heydalur er í 130 km fjarlægð frá Ísafirði og 320 km – 340 km fjarlægð frá Reykjavík eftir því hvaða leið er valin. Veitingasalur, sem er í gamalli hlöðu, rúmar 70 – 100 manns og fundaraðstaða er fyrir 10 – 40 manns. Boðið er upp á gistingu fyrir 59 manns í átta tveggja manna og einu þriggja manna herbergi í flokki 3  og átta tveggja manna og tveimur þriggja manna herbergjum í flokki 4 öll með sér baðherbergjum ásamt þremur sumarbústðum, annars vegar 10 manna og hins vegar 4 – 5 manna. Gott tjaldsvæði sem er opið frá 1. júní fram í októberlok.

 

Gnægð afþreyingar er í boði. Lítil sundlaug í suðrænu gróðurhúsi, heitur frumlegur pottur og náttúrulaug vígð af Gvendi góða. Kajak og hestaleiga með leiðsögn við allra hæfi, bæði styttri ferðir og dagsferðir. Veiði í vötnum.   Á veturna snjóþrúgur og gönguskíði. Falleg gönguleið um dalinn sem eitt sinn hýsti 13 bæi. Friðaður birkiskógur. Fjólbreytt  fuglalíf og plöntugróður. Fugla og plöntuspjöld eru til fróðleiks.

 

Veitingasalurinn er öllum opinn. Boðið er upp á fjölbreyttan matseðil, þar sem áhersla er lögð á mat úr héraði, heimaræktuðu grænmeti og nýveiddan silung úr eigið eldi. Veitingastaðurinn er með vínveitingaleyfi.

 

Á tjaldsvæðinu er snyrtiaðstaða með heitu vatni, þrjú kvenna og karla klósett og sturtur sitt hvoru megin. Rafmagn fyrir húsbíla og tjaldvagna. Leiksvæði bæði fyrir börn og unglinga. Frábært umhverfi  til göngu og leikja í kjarrinu.

 

Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla

 

Gisting:  3 hús, 19 herbergi, 59 rúm

Wild Westfjords

Hafnarstræti 9-13, 400 Ísafjörður

Við bjóðum uppá einkaferðir um Vestfirði á flottum og þægilegum 8 farþega breyttum Sprinter - fullkominn ferðamáti fyrir gamla góða vestfirska þjóðvegi og vegleysur. 

Hafið samband til þess að fá tilboð í ferð eða skutl.

www.wildwestfjords.com 

Absorb Iceland

Rósarimi 1, 112 Reykjavík

Absorb Iceland er íslenskur dagferðasali staðsettur í Reykjavík sem vottaður er af Ferðamálastofu Íslands og fer eftir öllum lögum og reglum í ferðaþjónustu á Íslandi.

Við sérhæfum okkur í einkaferðum innanlands þar sem ferðast er á afslappandi og ánægjulega vegu. Með okkar reynda leiðsögufólki færðu að upplifa allt sem Ísland og hrífandi náttúru þess hafa að bjóða, hvort sem er með stútfullri ferðaáætlun af fjöri eða rólegum og þægilegum degi.

Við elskum að sníða ferðir að þörfum gesta okkar til að gera upplifun þeirra af Íslandi einstaka og ógleymanlega um alla ævi. Við leggjum ávallt áherslu á að veita gestum okkar persónulega og vinalega þjónustu, svo þeim líði eins og þeir séu að skoða landið með vini. Þú getur alltaf haft samband við okkur til að byrja að skipuleggja dvöl þína á Íslandi með bestu mögulegu ferðaáætlun sem er útbúin sérstaklega fyrir þig.

Við búum í Reykjavík og höfum brennandi áhuga á Íslandi. Okkur finnst við svo lánsöm að hafa alist upp og búið í okkar frábæra landi og viljum deila þekkingu okkar og kunnáttu á landinu og öllum þeim undrum sem Ísland hefur upp á að bjóða með nýjum vinum okkar.

Þú ferðast í einkaferð með persónulegum leiðsögumanni og færð nákvæmari upplifun af Íslandi og náttúru þess, menningu og sögu. Þess vegna eru ferðirnar okkar einkaferðir svo gestir okkar fái persónulegri nálgun. starfsfólk okkar er staðbundið. 

Iceland backcountry travel ehf.

Urðarvegur 27, 400 Ísafjörður

Iceland BackCountry Travel býður uppá sérsniðnar margra daga ferðir fyrir allt að 17 manna hópa í litlum rútum. Einnig er boðið uppá sérsniðnar ferðir og sætaferðir á mikið breyttum fjallajeppum.

Útsýnisferðir, ljósmyndaferðir með áherslu á heimskautarefinn eða annað dýralíf eftir óskum hvers og eins. Norðurljósaferðir, jöklaferðir, gönguferðir og náttúrulaugar. Ferðir frá 2 klst og uppúr. Sérsniðnar ferðir eftir þínum óskum um allt Ísland mögulegar. Hafið samband til að fá tilboð í draumaferðina ykkar.