Fara í efni

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Til baka í viðburði
Hvenær
föstudagur, 5 júní
Hvar
Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
Klukkan
18:00-20:00

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Sumardagskrá Duus Safnahúsa hefst með opnun fjögurra nýrra sýninga næstkomandi föstudag.

Sýningar Listasafns Reykjanesbæjar:

Af hug og hjarta
Haraldur Karlsson
Á sýningunni Af hug og hjarta er að finna tilraunakennd vídeóverk eftir Harald Karlsson. Frá árinu 2014 hefur Haraldur verið að vinna verk í vídeó sem byggja á segulómmyndum af heila og hann kallar einfaldlega Heili (Brain). Nýverið áskotnuðust honum einnig segulómyndir af hjarta sem hann notar á sama hátt og birtast í þessari sýningu með myndum af heilanum. Hluti af innsetningunni í Listasafni Reykjanesbæjar byggir einnig á óhlutbundnu myndefni sem fjallar um sama viðfangsefni en eru unnið beint í myndvinnsluforrit. Verkið er langtímaverkefni, gert í beinu framhaldi af Litla sólkerfinu (2000-2022).

Gerðið
Steingrímur Eyfjörð
Gerðið er innsetning og lýsir ferli listamannsins þar sem hann nær tengslum við huldumann í gegnum miðil. Verkið er smíðað eftir leiðbeiningum huldumannsins og kaupir Steingrímur einnig af honum huldukind til þess að sýna í gerðinu. Áhorfandinn stendur því gagnvart nútíma álfasögu þar sem hann þarf að ákveða hverju hann vilji trúa.

Sýningar Byggðasafns Reykjanesbæjar:

Hlustað á hafið
Sýningin fjallar um náin tengsl sjómanna árabátatímans við hafið umhverfis Reykjanesið. Íbúar þessa svæðis áttu allt sitt undir hafinu og því sem sjórinn gaf. Undir yfirborðinu var gullkistan sem sjómenn sóttu lífsviðurværið í, án auðugra fiskimiða nærri landi hefði svæðið trauðla haldist í byggð.

Fólkið í kaupstaðnum
Á sýningunni gefur að líta sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar með sérstakri áherslu á ljósmyndir Heimis Stígssonar og Jóns Tómassonar. Þema sýningarinnar er fólk og mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994.

Sýningin er jafnframt tileinkuð nýjum ljósmyndavef Byggðasafns Reykjanesbæjar, www.reykjanesmyndir.is, sem verður opnaður við þetta tilefni.

Viðburðinn má einnig skoða á Facebook hér: 
https://www.facebook.com/events/263705461541216

Frítt

Aðrir viðburðir

5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær