Fara í efni

R.H.B. - Grétar Matt - Duld

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 9 október
Hvar
Hljómahöll
Klukkan
20:00-22:00

R.H.B. - Grétar Matt - Duld

Hljómsveitin Rolf Hausbentner Band (R.H.B) gaf út sína fyrstu breiðskífu, Out of Reach, þann fyrsta ágúst þessa árs.

Til þess að fagna þeim áfanga er blásið til tónleika í Bergi í Hljómahöll fimmtudagskvöldið 9. október. Listamennirnir Grétar Matt og Duld munu jafnframt koma fram ásamt hljómsveitum. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er miðaverð kr. 3.000. Hljómsveitin Rolf Hausbentner Band (R.H.B.) var stofnuð fyrir um 5 árum síðan og spilar kraftmikið gítarrokk. Hljómsveitina skipa þeir Pálmar Guðmundsson, Smári Guðmundsson, Ólafur Ingólfsson, Ólafur Þór Ólafsson og Hlynur Þór Valsson. Þau Grétar Matt, Ástþór Sindri Baldursson og Birta Rós Sigurjónsdóttir munu jafnframt koma fram með hljómsveitinni. www.rolfhausbentnerband.is

Grétar Matt, eða Greddi Rokk eins og margir kalla hann, gaf nýlega út sína fyrstu breiðskífu. Platan heitir Unbreakable og er að finna á öllum helstu streymisveitum sem og á vínyl. Hljómsveitina skipa þeir Grétar Matt, Hálfdán Árnason, Jóhann Friðrik og Birgir Nielsen.

Duld er listamannsnafn tónlistarkonunnar Birtu Rósar Sigurjónsdóttur sem hefur marga fjöruna sopið í tónlistarheiminum, allt frá rokki yfir í jazz. Með henni spilar hljómsveitin korter í Prog. Þá hljómsveit skipa ásamt henni þeir Sveinbjörn Ólafsson á gítar og Valur Ingólfsson á trommur.

3000 kr.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær