Fara í efni

Listamanna- og sýningarstjóraspjall: Guðrún Gunnarsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 22 janúar
Hvar
Duusgata 2-8, Keflavík, Iceland
Klukkan
14:00-15:00

Listamanna- og sýningarstjóraspjall: Guðrún Gunnarsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson

Sunnudaginn 22. janúar kl. 14:00 verður listamaðurinn Guðrún Gunnarsdóttir með listamannaspjall um einkasýningu sína Línur, flækjur og allskonar í Listasafni Reykjanesbæjar. Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri mun leiða spjallið með Guðrúnu og ræða við sýningargesti.
 
Línur, flækjur og allskonar
Guðrún Gunnarsdóttir er frumkvöðull á sviði þráðlistar og gefur sýning hennar góða mynd af þróun listamannsins frá myndvefnaði á áttunda áratug síðustu aldar, til þrívíddarmynda sem einkenna myndlist hennar í dag.
Þráðlist eins og sú sem Guðrún Gunnarsdóttir ástundar er ótvírætt þrívíddarlist í klassískum skilningi, þótt listakonan gangi í berhögg við ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá örófi alda. Til að mynda hirðir hún ekki um að setja verk sín á stalla, og þar með bæði upphefja þau og staðsetja utan seilingar. Þess í stað fá þau að leika lausum hala í námunda við okkur, hanga ofan úr lofti, fikra sig ofur varlega upp og niður veggi, eða mynda smágerðar lífrænar einingar niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á athygli, eins og stallsettir skúlptúrar óneitanlega gera, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast okkur eins og fyrir tilviljun, jafnvel koma þægilega á óvart, ekki ósvipað og ljóðlínur með óvæntu niðurlagi.
 
Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.
Línur, flækjur og allskonar er styrkt af myndlistarsjóði.
Sýningin stendur til og með 5. mars 2023.
 

 

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær