Fara í efni

Listahátíð barna og ungmenna 2025

Til baka í viðburði
Hvenær
1.-11. maí
Hvar
Listasafn Reykjanesbæjar
Klukkan
12:00-17:00

Listahátíð barna og ungmenna 2025

Listahátíð barna og ungmenna í Reykjanesbæ verður haldin í nítjánda sinn í Listasafni Reykjanesbæjar og Duus Safnahúsum 1. - 11. maí 2025.
 
Grunn- og leikskólar Reykjanesbæjar eru með formlega séropnun miðvikudaginn 30. apríl.
 
Fjölbrautaskóli Suðurnesja opnar sýningu í Bíósal þann 30. apríl kl. 15:00 - 17:00.
 
Þann 1. maí er opið fyrir almenning til og með 11. maí.
 
Komið við og sjáið sköpunargleði barna og ungmenna í Reykjanesbæ.
Aðgangur er ókeypis á meðan listahátíð stendur yfir, verið öll innilega velkomin!
 
Opnunartími listahátíðar:
Virkir dagar 9:00 - 17:00.
Helgar 11:00 - 17:00.
 
----
 
Orð eru ævintýri - Leikskólar Reykjanesbæjar
 
Allir leikskólar Reykjanesbæjar eru þátttakendur á Listahátíð og er bókin „Orð eru ævintýri“ kveikjan að þema sýningarinnar í ár, sem er staðsett í fremri sal Listasafnsins.
 
204 metrar á sekúndu - Grunnskólar Reykjanesbæjar
 
204 metrar á sekúndu er sýning í Listasafni Reykjanesbæjar á verkum allra barna í 5. bekk í Reykjanesbæ sem unnin eru í samvinnu við sjö listamenn, með stuðningi Barnamenningarsjóðs.
Þó að okkur finnist við vera kyrr, erum við á stöðugri hreyfingu. Hraði Reykjanesbæjar vegna snúnings jarðar er til dæmis 204 metrar á sekúndu eða 734 kílómetrar á klukkustund.
Sýningin 204 metrar á sekúndu er afrakstur samstarfs 5. bekkinga í grunnskólum Reykjanesbæjar við listamennina Arnar Ásgeirsson, Braga Hilmarsson, Deepu Iyengar, Hye Joung Park, Íris Maríu Leifsdóttur, Maríönnu Evu Dúfu Sævarsdóttur og Nínu Óskarsdóttur.
Hugtakið hreyfing var viðfangsefni fimmtu bekkinganna í samvinnu þeirra og listamannanna. Stöðug hreyfing er eitthvað sem allt lífríki á sameiginlegt – hvort sem það erum við að innan eða utan; marglytta í sjónum við höfnina; brum á trjágróðri eða jörðin sjálf með öllu hennar innra iði. Listafólkið unga nálgaðist enda viðfangsefnið af þeirri forvitni, hugmyndaauðgi, áhuga og sköpunarkrafti sem einkennir opinn huga barna.
Listahátíð barna er nú haldin í Reykjanesbæ í 20. sinn og verk barna allt frá leikskólaaldri hafa verið sýnd í Listasafni Reykjanesbæjar af því tilefni. Í ár hlaut safnið styrk frá Barnamenningarsjóði í annað sinn vegna verkefnis sem felur í sér að börn í 5. bekk grunnskóla fá tækifæri til að vinna milliliðalaust með listamönnum á tímabili sem spannar þrjár vikur, að hugmyndavinnu og gerð verka fyrir sýningu í Listasafninu sem er stýrt af sýningarstjóra.
Beint samstarf barna við listamenn sem koma inn í skólastarfið í skýrt afmarkaðan tíma er mikilvægt fyrir margra hluta sakir. Það er tækifæri til að sýna verk sín í opinberu listasafni sömuleiðis. Það jafnar til að mynda aðstöðu barna til að tjá heimsmynd sína og innra líf, og finna hliðstæðu við eigin upplifun í safnastarfi. Í starfi opinberra stofnana, svo sem í listasafni, er brýnt að gæta að inngildingu, aðgengi og jafnræði í þjónustu sem snýr að börnum og ungmennum, sem og öðrum samfélagshópum. Þátttaka í lista- og menningarstarfi bæði fyrir iðkendur og notendur, sýnendur og safnagesti, á það sameiginlegt að geta verið vettvangur þess að finna samsvörun við eigin upplifun í lífinu sem er grundvöllur þess að finnast maður tilheyra og geta myndað félagsleg tengsl, á öllum æviskeiðum.
 
Útskriftarárgangur Listnámsbrautar hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja verða með sýningu á verkum sínum í Bíósal.
 
Listasafn Reykjanesbæjar hvetur alla bæjarbúa til að skoða sýninguna í Listasafni Reykjanesbæjar.
 
Listahátíðin er hluti af BAUN, barna- og ungmennahátíð, og er afrakstur fjölbreytts listastarfs nemenda úr öllum leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar og af listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær