Fara í efni

Guðrið Hansdóttir

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 29 október
Hvar
Berg
Klukkan
20:00-22:00

Guðrið Hansdóttir

Hin ástsæla færeyska tónlistarkona Guðrið Hansdóttir snýr aftur til Íslands í október 2026 með glænýja og ferska tónlist í farteskinu! 

 

Guðrið fagnar útgáfu sjöundu hljóðversplötu sinnar, Sýrublað, með því að leggja í umfangsmikla hringferð um landið þar sem hún mun halda 9 tónleika á tímabilinu 20. til 29. október. Platan Sýrublað kom út fyrr á árinu við frábærar viðtökur. Um tónlistina segir Guðrið sjálf: „Tónlistin er eins og að bíta í túnútublað (súru) – fersk, stökk, græn og örlítið súr.“ Platan er pródúseruð af Høgni Lisberg og einkennist af grípandi og draumkenndum indí-pop hljómi sem Guðrið er þekkt fyrir. Guðrið hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi allt frá aldamótum, bæði sem sólólistamaður og sem hluti af rafpopp-dúettinum BYRTA. Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var m.a. valin plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum (FMA). Á þessu ferðalagi um Ísland verður Guðrið ekki ein á ferð, heldur fær hún til liðs við sig tvo magnaða meðspilara. Ekki missa af tækifærinu til að upplifa einn af skærustu tónlistarmönnum Færeyja í lifandi og nánu umhverfi. 

 

Tryggðu þér miða strax!

5990 kr.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær