Fara í efni

Feita Hjartað - uppistand með Dóra DNA

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 1 október
Hvar
Hljómahöll
Klukkan
20:00-22:00

Feita Hjartað - uppistand með Dóra DNA

Feita hjartað er glæný gamansýning frá einum ástsælasta ástmegi þjóðarinnar og sú fyrsta síðan sýningin Engar takmarkanir gekk fyrir fullu húsi um allt land árið 2023.

 

Sýningin hefur jafnframt verið sýnd fyrir fullu húsi í vetur. Maðurinn sem einnig hefur verið nefndur Gene Hackman sinnar kynslóðar, maðurinn sem er bæði barnabarn og nafni nóbelsskáldsins, sjónvarpsmaðurinn, hinn íslenski Colonel Sanders, rapparinn, leikarinn, skáldið, höfundurinn og nautnaseggurinn hefur fyrir löngu sigrað þjóðina og gerir fátt betur en að koma fólki til að hlæja.

Í sýningunni Feita hjartað kafar Dóri ofan í kviku tilverunnar og skoðar sjálfan sig að innan. Þar er margt að finna sem gaman er að segja frá og enn meira gaman að hlusta á.

 

Sýningin er stranglega bönnuð innan 16 ára.

 

Upphitun verður í höndum hinnar óviðjafnanlegu Margrétar Björnsdóttur.

 

Hópabókanir: Hópar sem telja 10 eða fleiri fá afslátt á þessa sýningu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á info@hljomaholl.is fyrir hópabókanir.

6.490 kr.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær