Fara í efni

Chögma, Krownest og Sót

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 8 mars
Hvar
Hljómahöll
Klukkan
20:00-22:00

Chögma, Krownest og Sót

Chögma

Chögma er framsækin þungarokkshljómsveit austan að fjörðum sem hóf störf haustið 2023. Chögma blandar saman mörgum mismunandi stílum af þungarokki með einstökum keim af djassi, gruggi og íslenskri þjóðlagatónlist í lögum sínum.

 

Krownest

Krownest er harðkjarna hljómsveit frá Reykjavík sem dregur innblástur frá mörgum mismunandi stefnum þungarokks til þess að móta hljóðheim sem einkennir þá.Stefnur sem má nefna til þess að lýsa einkennum harðkjarna rokks Krownests eru meðal annars dauðarokk, nu-metal og jafnvel svartmálmur. Krownest eru þekktir fyrir öfluga sviðsframkomu og kröftuga tónleika sem áhorfendur rífa í sig og skilja vitni eftir með verki í hálsinum. Síðan stofnun þeirra árið 2020 hafa Krownest sankað að sér eftirtektarverðum aðdáendahópi innan jaðartónlistarsenunnar á Íslandi og eru oft taldir meðal leiðenda nýju bylgju hennar.

 

Sót

SÓT, upprunalega frá Stykkishólmi og Akureyri hefur látið vel í sér heyra undanfarna mánuði með níðþunga hljóma sem glamra jafn þungt og þeir eru fagrir. Með rætur sínar fastar í psychedelic og Doom/sludge málm senunni hafa þeir bæði hlaðað að rokkurum Íslands og nýjum aðdáendum með því að blanda saman fegurð, reiði og örvæntingu.

3.000 kr.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær