Fara í efni

Boðflenna: Listamanna- og sýningarstjóraspjall með Snorra Ásmundssyni og Helgu Þórsdóttur

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 30 september
Hvar
Duusgata 2-8, Keflavík, Iceland
Klukkan
14:00-15:00

Boðflenna: Listamanna- og sýningarstjóraspjall með Snorra Ásmundssyni og Helgu Þórsdóttur

Laugardaginn 30. september kl. 14:00 mun listamaðurinn Snorri Ásmundsson ásamt Helgu Þórsdóttur, safnstjóra, taka á móti gestum í listamanna- og sýningarstjóraspjall um sýninguna Boðflennu í Listasafni Reykjanesbæjar.
 
Verið velkomin!
Aðgangur er ókeypis
 
Boðflenna
Sköpun og gjörðir Snorra verða til þar sem hann stendur og hvíla í honum sjálfum. Þannig er myndsköpun hans ekki skáldskapur eða vel nært „alter egó“. Listamaðurinn er gjörsneyddur
leiklistarhæfileikum. Að þessari ástæðu má mögulega halda því fram að Snorri sé stórtækasta lifandi listaverk Íslenskrar listasögu. Í raun er aðeins hægt að bera Snorra saman við bresku listamennina Gilbert og George, sem framkvæma eigið líf sem lifandi skúlptúr þar sem efniviðurinn er breskur persónuleiki og sú táknfræði sem umlykja það auðkenni. Það sem þú sérð er framlag Snorra Ásmundssonar til listarinnar, til íslensku þjóðarinnar og heimsins líka. Æsa Sigurjónsdóttir, segir að listamenn hafi gert til sín miklar kröfur um að vísa þjóðinni leiðina til framtíðar á fyrri hluta tuttugustu aldar. Listamaðurinn átti að vera brautryðjandi, landnámsmaður og sjáandi, andlegur viti sem bryti niður hið gamla og úrelta og benti á hið nýja sem koma skildi. (Sigurjónsdóttir. 2011) Segja má að þau gildi sem Æsa, telur upp séu leiðarljós Snorra í lífinu og listinni. Hann hefur unnið sem andlegur leiðbeinandi, sjáandi yogi, brautryðjandi tímatengdrar listar, jafnvígur í söng og píanóleik, listamaður sem leggur sig sannarlega fram við að brjóta niður það gamla og úrelta, á sama tíma og hann er óþreytandi að benda á nýjar leiðir og það sem koma skal.
 
Sýningarstjóri Helga Þórsdóttir. Aðstoðarsýningarstjórar Iðunn Jónsdóttir og Helga Arnbjörg Pálsdóttir.
 
Boðflenna, einkasýning Snorra Ásmundssonar, stendur til og með 29. október 2023.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær