Fara í efni

Aldous Harding

Til baka í viðburði
Hvenær
mánudagur, 15 ágúst
Hvar
Hljómahöll
Klukkan
20:00

Aldous Harding

Það verður að teljast sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarunnendur á Íslandi að Aldous Harding leggi lykkju á leið sína til að halda tónleika hér á landi. Hún gaf út sína fyrstu plötu Aldous Harding árið 2014 og hefur síðan þá vakið athygli fyrir lagasmíðar og ekki síður flutning. Plöturnar Party (2017) og Designer (2019) hlutu einróma lof gagnrýnenda og tónlistarunnenda um allan heim. Þannig fékk hún 5 stjörnur af fimm mögulegum í Q tímaritinu og í The Independant fyrir Designer. Lagið The Barrel af plötunni náði talsverðri spilun á Íslandi þegar það kom út í febrúar 2019. Dómar um nýju plötuna Warm Chris eru farnir að birtast og gaf Clash henni 9 einkunn og Mojo og Uncut 8. Lögin Fever og Lawn af Warm Chris hafa heyrst á öldum ljósvakans síðustu vikur.

Aldous Harding hefur unnið síðustu þrjár plötur (Party, Designer og Warm Chris) með tónlistarmanninum John Parish sem er þekktur m.a. fyrir samstarf sitt með PJ Harvey, Eels og Tracy Chapman.

Tónleikarnir fara fram í Hljómahöll í sumar þann 15. ágúst.

Húsið opnar kl. 19 og tónleikar hefjast kl. 20.

Rútuferðir eru í boði á milli Reykjavíkur og Hljómahallar. Rútan fer frá BSÍ (N1 planinu) til Hljómahallar kl. 18:30 og fer aftur til Reykjavíkur um leið og tónleikunum lýkur. Þegar búið er að velja miða á tónleikana er hægt að bæta rútuferðum við í kaupferlinu.

6900 kr.

Aðrir viðburðir

5. jún

Opnun sumarsýninga Byggðasafns og Listasafns Reykjanesbæjar

Duus Safnahús / Duus Museum, Duusgata, Reykjanesbær
5. jún

Eagles - Bestu lög Eagles

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
6. jún

Bakkalábandið - Lagst að bryggju

Café Bryggjan, Miðgarður, Grindavík
17. jún

Þrautaleikur fjölskyldunnar

Reykjanesbær