Tónlistarhátíðin Við Djúpið
Sex daga tónlistarhátíð þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi flutning kammertónlistar frá öllum tímum, ekki síst samtímatónlist. Á hverjum degi hátíðarinnar er boðið upp á minnst tvenna tónleika. Á kvöldin fara tónleikarnir fram í Hömrum, tónleikasal tónlistarfélagsins en á daginn færist tónlistin víða um bæinn.
Stakir tónleikamiðar og hátíðarpassi í boði.