Fara í efni

Hátíð fer í hönd í Tálknafjarðarkirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 11 desember
Hvar
Tálknafjarðarkirkja
Klukkan
17:00-19:00

Hátíð fer í hönd í Tálknafjarðarkirkju

Einvalalið vestfirsks tónlistarfólks hefur nú tekið höndum saman og mun það bjóða upp á jólatónleika á Hólmavík, Tálknafirði og Ísafirði dagana 10.-12. desember. Hópurinn hefur nokkrum sinnum áður sungið jólin í hjörtu Vestfirðinga við góðar undirtektir. Hann samanstendur af Dagnýju Hermannsdóttur, Jóni Hallfreð Engilbertssyni, Pétri Erni Svavarssyni, Stefáni Jónssyni og Svanhildi Garðarsdóttur. Auk þeirra mun sópransöngkonan Sigrún Pálmadóttir koma fram með hópnum á Ísafirði.

Tónleikarnir í Tálknafjarðarkirkju verða laugardaginn 11. desember kl. 17. Boðið verður upp á hraðpróf fyrir tónleika.

Miðasala fer fram á tix.is: https://tix.is/is/search/?k=h%C3%A1t%C3%AD%C3%B0%20fer%20%C3%AD%20h%C3%B6nd 

4900/2500

Aðrir viðburðir