Fara í efni

Gönguskíðaferð frá Aðalvík til Hesteyrar

Til baka í viðburði
Hvenær
föstudagur, 2 apríl
Hvar
Ásgeirsgata, Ísafjörður
Klukkan
09:00-19:00

Gönguskíðaferð frá Aðalvík til Hesteyrar

Ákveðið hefur verið að vekja upp gamla hefð og bjóða gönguskíðaferð frá Látrum í Aðalvík yfir til Hesteyrar á föstudaginn langa. Jón Björnsson fyrrum landvörður í friðlandi Hornstranda mun sjá um farastjórn og segja sögur af svæðinu.

Áætlað er að fara frá Ísafirði með bát til Aðalvíkur snemma morguns. Gestum og búnaði verður komið í land í Aðalvík með tuðrubát og þaðan haldið yfir heiðina til Hesteyrar. Leiðin er 13-14km og hækkuninn ca 350m.

Báturinn bíður hópsins á Hesteyri og verður farið til baka til Ísafjarðar eftir að allir hafa gætt sér á heitum drykki um borð. Hægt er að geyma aukaföt um borð í bátnum meðan gengið er.

Forsenda þátttöku er að hafa reynslu af göngu á skiðum utan brautar.

Allar frekari upplýsingar og bókarnir má fá hjá Vesturferðum.

14500 kr á mann

Aðrir viðburðir