Fara í efni

Sumartónleikaröð Ástu: Holtskirkja

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 13 júní
Hvar
Holtskirkja, Önundarfirði
Klukkan
20:00-21:30

Sumartónleikaröð Ástu: Holtskirkja

Í sumar ætla ég að halda tónleikaröð í þremur litlum kirkjum hér á norðanverðum Vestfjörðum.

Tónleikaröðin hefst í Holtskirkju í Önundarfirði. Það var einmitt í þessum firði þar sem ég samdi mína fyrstu plötu, Sykurbað, fyrir um 8 árum síðan.

Þetta verður einfalt: rödd, víóla og gítar. Hlakka til að sjá ykkur við rætur hvíta sandsins.

Ásta er söngvaskáld og víóluleikari, búsett á Ísafirði. Hún er klassískt menntuð frá Royal Danish Academy of Music í Kaupmannahöfn og hefur meðal annars leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á ferli sínum hefur hún unnið til margvíslegra verðlauna, nú síðast Kraumsverðlaunin fyrir plötuna sína Blokkarbarn, sem þykir ein eftirtektarverðasta útgáfa síðasta árs hér á landi.

2.500.-

Aðrir viðburðir