Sýningaropnun - Ljóðið í listum
Fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:00 verður opnuð sýning í Safnahúsi Borgarfjarðar á verkum fimm ungmenna úr héraði. Eru verkin afrakstur listasmiðju undir stjórn listakonunnar Svandísar Egilsdóttur, þar sem unnin voru verk út frá lögum, textum og ljóðum.
Er verkefnið hluti af BARNÓ, Barnamenningarhátíð Vesturlands.
Eru ungmennin að stíga sín fyrstu skref í listsköpun og sýningarhaldi og er óhætt að fullyrða að við eigum eftir að sjá meira til þeirra á þessu sviði í framtíðinni.
Þau sem eiga verk á sýningunni eru:
Sólveig Birna
Jónas Emil
Hilmir Bjarni
Einar Jósef
Anna Diljá
Sólveig Birna
Jónas Emil
Hilmir Bjarni
Einar Jósef
Anna Diljá
Sýningin stendur til 15. nóvember og er opin á opnunartíma Safnahússins.