Fara í efni

Réttir á Íslandi - bókaspjall með Önnu Fjólu Gísladóttur

Til baka í viðburði
Hvenær
þriðjudagur, 24 nóvember
Hvar
Skemman - Hvanneyri
Klukkan
20:00-21:30

Réttir á Íslandi - bókaspjall með Önnu Fjólu Gísladóttur

Næsta bókaspjall Landbúnaðarsafnsins verður haldið þann 24. nóvember kl. 20:00 í Skemmunni á Hvanneyri.
Þangað mætir Anna Fjóla Gísladóttir, ljósmyndari sem gaf út á dögunum bókina Réttir á Íslandi og segir okkur frá verkinu. Um bókina segir:
Undanfarin ár hefur Anna Fjóla Gísladóttir ljósmyndari leitað uppi fornar og nýjar réttir um allt land, tekið af þeim myndir af mikilli fagmennsku og skráð staðsetningu þeirra með GPS-mælipunktum. Í þessari gullfallegu bók eru ljósmyndir af um 700 nafngreindum réttum og fylgir fróðlegur texti með 250 þeirra. Einstök bók fyrir alla sem unna íslenskri náttúru og sögu.
Að sjálfsögðu verður í boði að kaupa bókina fyrir áhugasama og eru allir velkomnir! Frítt er á viðburðinn og jafnvel eitthvað gotterí með!

Aðrir viðburðir