Quarashi í Bíóhöllinni
Quarashi þakkar Bíóhöllinni og Skagamönnum fyrir sig með því að stíga á svið og taka nokkur vel valin lög.
Húsið opnar kl. 18:40, ekkert aldurstakmark.
„Við erum búnir að vera í æfingabúðum í nokkrar vikur í þessari mögnuðu Bíóhöll og okkur langar að endurgjalda þá miklu velvild sem okkur hefur verið sýnd hér á Akranesi. Þess vegna ætlum við að skella okkur á sviðið og taka nokkur vel valin lög fyrir Skagamenn og aðra gesti.
Hlökkum til að sjá ykkur – og við lofum alvöru showi!