Fara í efni

NASA heimsækir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 22 nóvember
Hvar
Þjóðgarðsmiðstöðin, Hellissandi
Klukkan
10:00-17:00

NASA heimsækir þjóðgarðsmiðstöð Snæfellsjökulsþjóðgarðs á Hellissandi

Komdu og hittu sérfræðinga frá NASA sem munu deila þekkingu sinni á norðurljósum, sólmyrkva, sólinni og geimveðri. Einnig gefst einstakt tækifæri til að fræðast um starfsferil vísindafólks hjá NASA og spyrja spurninga um stjörnufræði og geimrannsóknir.

Dagskrá

10:15 – 10:30
☀️ Gestir boðnir velkomnir: Sólin 101
Kynning á sólinni, geimveðri og rannsóknum NASA á áhrifum sólarinnar á geimumhverfi jarðar.

11:00 – 11:15
🌘 Sólmyrkvar
Hvernig verða sólmyrkvar til? Fjallað verður um vísindin á bak við sólmyrkva og þátt NASA í rannsóknum á nýjustu almyrkvum á Spáni og Íslandi.

12:00 – 12:15
🔭 Stjörnuskoðun dag og nótt
Lærðu hvernig hægt er að fylgjast örugglega með sólinni á daginn og hvaða tæki og aðferðir nýtast best við að skoða stjörnur og reikistjörnur að næturlagi.

12:30 – 14:00
🚀 Starfsferill hjá NASA & opið spjall
NASA-sérfræðingar segja frá fjölbreyttum leiðum sínum að störfum hjá geimvísindastofnuninni. Að því loknu verður opið spjall þar sem gestir geta spurt um hvaðeina sem tengist geimnum og störfum NASA.

14:30
🔭 Stjörnuskoðun dag og nótt
Endurtekin kynning.

15:30 – 15:45
🌌 Norðurljós
Kynning á því hvernig norðurljós verða til, litunum sem þau mynda og hvernig almenningur getur tekið þátt í Aurorasaurus, borgaravísindaverkefni undir forystu NASA.

16:30 – 16:45
❓ Spurt og svarað: Stjörnufræðin
Spurðu NASA-sérfræðingana um stjörnufræði, geimferðir, sólina, norðurljós eða hvað annað sem vekur forvitni.

Aðrir viðburðir