Menning og ferðaþjónusta á Vesturlandi: Opin vinnustofa um möguleika aukins samstarfs
Hvernig getum við eflt samstarf safna, menningarstofnana og ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu? Hvaða tækifæri felast í aukinni samvinnu og hvernig getum við nýtt þau betur?
Rannsóknarsetrið í safnafræði, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Síldarminjasafnið á Siglufirði og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) bjóða til opinnar vinnustofu þriðjudaginn 10. nóvember, kl. 10:00–15:00, á Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Markmið viðburðarins er að leiða saman fólk úr safna- og menningargeiranum og ferðaþjónustunni, skapa vettvang fyrir samtal og hugmyndaskipti og kanna leiðir til að efla samstarf og stuðla að sjálfbærri þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.
Menning er mikilvægur hluti af upplifun ferðamanna á Íslandi og eru safnaheimsóknir þriðja vinsælasta afþreying ferðamanna, á eftir náttúrulaugum og heilsulindum. Því felast mikil tækifæri í að styrkja tengsl þessara tveggja geira og þróa áfram fjölbreytta og áhugaverða upplifun fyrir gesti.

Viðburðurinn verður blanda af pallborðsumræðum, samtali og tengslamyndun, þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að deila reynslu, ræða áskoranir og tækifæri og mynda ný tengsl.
Þátttaka er ókeypis en þátttakendur eru hvattir til að skrá sig hér: https://forms.gle/UATsLvi9cmgNHEeM6
Við hvetjum öll sem starfa innan ferðaþjónustu, safna og menningarstarfsemi, eða hafa áhuga á auknu samstarfi þessara geira, til að mæta og taka þátt í samtalinu.
Verið hjartanlega velkomin!