Fara í efni

Marilyn Monroe Heiðurstónleikar á Írskum dögum á Akranesi

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 29 júní
Hvar
Tónlistarskólinn á Akranesi
Klukkan
19:30

Marilyn Monroe Heiðurstónleikar á Írskum dögum á Akranesi

Á tónleikunum verða lög úr söngbálki hinnar goðsagnakenndu Marilyn Monroe flutt af söngkonunni Rebekku Blöndal og hennar stórkostlega bandi.
 
Tónleikarnir fara fram 29. júní í Tónbergi, Tónlistarskóla Akraness kl. 19.30.
 
Miðaverð 6000 kr. - Miða er hægt að kaupa á Snyrtistofu Brynhildar, Stillholti 14, Akranesi.
 
Rebekka er ein af fremstu jazz- og blússöngkonum landsins og hlaut hún nýverið Íslensku Tónlistarverðlaunin fyrir árið 2022 sem söngkona ársins í flokknum jazztónlist. Rebekka gaf nýverið út plötuna Ljóð sem hefur fengið prýðis dóma og þó nokkra spilun á ljósvakamiðlum. Verkefnið var flutt á Múlanum Jazzklúbbi í Hörpu á vordögum við mjög góðar undirtektir.
Rebekka Blöndal, söngur
Snorri Sigurðarson, trompet, hljómsveitastjórn og útsetningar
Haukur Gröndal, saxófónn og klarinett
Ólafur Jónson, saxófónn
Daði Birgisson, hljómborð/píanó
Börkur Birgisson, gítar
Birgir Steinn Theodórsson, bassi
Erik Ovick, trommur
 
 
6000

Aðrir viðburðir