Líf í lundi Einkunnum 2026
Dagskrá
Kl. 11. Gæludýramessa. Sr. Heiðrún Bjarnadóttir predikar
Að lokinni messu býður félagið til skógarskemmtunar – skógarganga, gæludýraleikar og fleira.
Skógarganga
Lagt verður af stað í göngu kl. 12 og mun Valdimar Reynisson leiða gönguna.
Gæludýraleikar
Leikar hefjast kl. 11:45. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Fyrir alla:
• Mesta dillirófan
• Besta brosið
• Virðulegasti öldungurinn
• Sætasti nebbinn
Fyrir krakka:
• Flottasta parið (mætið klædd í stíl við gæludýrið ykkar!)
• Besta bragðið – sýndu hvað „trix“ dýrið þitt getur gert.
Verðlaun verða veitt í hverjum flokki.
Hressing í boði félagsins – grillaðar pylsur, ketilkaffi, kakó og grillaðir sykurpúðar!