Fara í efni

Kvöldganga á KLAKK

Til baka í viðburði
Hvenær
þriðjudagur, 29 september
Hvar
Bárá
Klukkan
18:00-20:30

Kvöldganga á KLAKK

Ferðafélag Snæfellsness efnir ásamt Grundarfjarðarbæ til kvöldgöngu á Klakk og er gangan hluti af íþróttaviku ÍSÍ. Gangan er ókeypis og opin öllum. Búast má við um alls 7 km göngu og eru hlutar af leiðinni erfiðir yfirferða vegna grjóts og/eða bratta.
Til að komast á upphafsstað göngu er ekið eftir Framhúsavegi tæpan kílómetra framhjá golfvellinum. Lagt er á malarstæði hjá Bárá við enda vegarslóðans yfir Bárarháls.
Um er að ræða göngu sem hentar flestum í sæmilegu formi en þó með það í huga á köflum getur leiðin verið brött og grýtt. Þar sem gönguleiðin er stikuð og oftast sýnileg í landslaginu fá gestir frjálsar hendur með hraða, en frá FFSN koma fararstjórar sem fylgja þeim sem vilja ganga í hóp og tryggja að allir skili sér á leiðarenda.
Höfuðljós eða önnur lýsing er nauðsynleg en sólsetur er um 19:30. Eindregið er mælt með því að ganga í góðum gönguskóm með ökklastuðningi. Gott er að hafa með aukafatnað, létt nesti og drykkjarvatn í léttum bakpoka.

Aðrir viðburðir