Fara í efni

Krakka-Rökkur-Rokk

Til baka í viðburði
Hvenær
5.-11. október
Hvar
Samkomuhús Grundarfjörður
Klukkan

Krakka-Rökkur-Rokk

Vikuna 5.-11. október verður haldin sannkölluð rokkveisla í Grundarfirði þar sem ungir tónlistarmenn eiga sviðið. Frá mánudegi til föstudags verða litlir rokktónleikar/gjörningar/sýningar hér og þar um bæinn, í heimahúsum, bílskúrum, görðum eða hvar sem listamönnum dettur í hug.
Enn er pláss fyrir fleiri atriði af rokktengdum uppákomum frá þriðjudegi til fimmtudags. Kröfurnar eru þær að þetta sé rokktónlist og krakkar/ungt fólk sé í sviðsljósinu en þó mega fullorðnir vera með af krakkarnir óska þess. Forráðamenn aðstoða sitt unga fólk við sína gjörninga.
Á laugardag og sunnudag verða tónleikar með hljómsveitum og rokk-kór haldnir í Samkomuhúsi Grundarfjarðar.

Aðrir viðburðir