Fara í efni

Júlíana - hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi

Til baka í viðburði
Hvenær
20.-21. mars
Hvar
Stykkishólmur
Klukkan

Júlíana - hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi

Júlíana - hátíð sögu og bóka 2026

Þrettánda Júlíönu hátíð verður haldin í Stykkishólmi dagana 19. - 21. mars 2026. Sem fyrr verður metnaðarfull dagskrá þar sem rithöfundar, ljóðskáld og fleiri listamenn stíga á stokk.

Frítt er á alla viðburði

DAGSKRÁ:

FIMMTUDAGUR 19. MARS
- KIRKJAN Á BORGINNI-
KL. 20:00 TÓNLIST - NEMENDUR TÓNLISTARSKÓLANS
AFHENDING VIÐURKENNINGA OG VERÐLAUNA
Afhent viðurkenning í ljóðasamkeppni Grunnskólanemenda
á Vesturlandi. Samstarf Júlíönu hátíðar og
BARNÓ - BEST - MEST - VEST
Vinningsljóðið lesið
Dómnefnd í ljóðasamkeppni á vegum Júlíönu hátíðar afhendir
vinningshöfum verðlaunin. Lesið úr vinningsljóði
ERINDI Dvöl Júlíönu Jónsdóttur, skáldkonu í Stykkishólmi
TÓNLISTARATRIÐI - LÚÐRASVEIT STYKKISHÓLMS

FÖSTUDAGUR 20. MARS
KL. 11:00 AMTSBÓKASAFNIÐ
ÞORPIÐ MITT AFRAKSTUR RITVINNSLU
Samstarf Júlíönu hátíðar og Grunnskólans 2026
Nemendur miðstigs stíga á stokk undir handleiðslu
Yrsu Þallar Gylfadóttur rithöfundar
KL. 14:30 NORSKA HÚSIÐ
-EYJALÍF-
Málverkasýning á verkum Reynis Vilhjálmssonar (1934-2024)
KL. 15:00 SKIPAVÍK VERSLUN
Sýning á verkum nemenda yngstu bekkja Grunnskólans
Sýningin er opin alla daga hátíðarinnar
KL. 16.00 SAFNAÐARHEIMILIÐ
Afmælishátíð Stúlku 150 ára - Hagalagðar 110 ára
ÚTGÁFUHÁTÍÐ: Júlíana Jónsdóttir í Akureyjum
Ljóðmæli: Stúlka & Hagalagðar
Léttar veitingar að hætti Júlíönu hátíðar
KL. 20:30 KIRKJAN Á BORGINNI
SPÍTÓ, REBBÓ OG SÍNALCO
Stykkishólmur - bernskuland á áttunda áratugnum
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, brottfluttur Hólmari
TÓNLEIKAR
Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Sv. Pétursson
flytja íslenskar perlur tóna og texta

LAUGARDAGUR 21. MARS
KL. 11:15 NARFEYRARSTOFA - JÚLÍÖNUSÚPA
Páll Valsson og Ólafur K. Ólafsson hitta leshópana
sem lásu FERÐALOK í vetur
KIRKJAN Á BORGINNI
KL 13:30 ÁSTARLJÓÐ TIL LANDSINS
Steinunn Sigurðardóttir skáld og rithöfundur
fjallar um ástarland sitt og Jónasar Hallgrímssonar
KL. 14:15 „HERRA SNÆFELLSJÖKULL ER STÓRKOSTLEGUR”
HRINGSÓLAÐ MEÐ JÓNASI UM SNÆFELLSNES
Páll Valsson fræðimaður og rithöfundur
KL.15:00 Safnaðarheimilið Kaffi og meðlæti til sölu
KL. 15:45 LJÓÐ OG LÍF JÓNASAR HALLGRÍSSONAR
Umræður:
Stjórnendur Sigþrúður Gunnarsdóttir og Jón Yngvi Jóhannsson,
bókmenntafræðingar. Þátttakendur Páll Valsson, Anton Helgi Jónsson
KL. 20:30 KIRKJAN Á BORGINNI
HEIÐRUN
Viðurkenning fyrir framlag til menningar og framfaramála
TÓNLISTARFLUTNINGUR Léttir tónar með Hólmurum

 

 

Aðrir viðburðir