Jólaljós tendruð í Búðardal
Ljósin verða tendruð þriðjudaginn 24. nóvember kl. 17:00
Skátafélagið Stígandi í samstarfi við Dalabyggð bjóða ykkur að vera viðstödd þegar ljósin verða tendruð á jólatrénu við Auðarskóla.
Sögur segja að bræður úr fjöllunum muni kíkja í heimsókn. Stígandi býður upp á heitt kakó. Munum að koma klædd eftir veðri.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Foreldrafélag Auðarskóla verður með jólasamveru og notalega stemningu í framhaldi af viðburði.