Fara í efni

Hrekkjavakan í Grundó

Til baka í viðburði
Hvenær
28.-31. október
Hvar
Grundarfjörður
Klukkan
17:00-21:00

Hrekkjavakan í Grundó

Hrekkjavakan í Grundarfirði verður haldin í 10. sinn þetta árið.
Að þessu sinni spannar hún 4 daga en hefur ávallt verið bara einn dagur. Drög að dagskrá lítur svona út en þó er alltaf fyrirvari varðandi tímasetningu á þeim dagskrárliðum sem eru háðir veðri og vindum:
Miðvikudagurinn 28. október
Kl 17: 00 - Nornaþing Grundarfjarðar. Hátíðin verður sett með pálínuboði í Samkomuhúsinu þar sem þátttakendur eru hvattir til að mæta með eitthvað gott á hlaðborðið. Happadrætti fyrir yngstu kynslóðina, búningaverðlaun valin. Óvænt opnunaratriði.
Fimmtudagurinn 29. október
Kl 16:00 - Föndurstund og upplestur í Sögumiðstöðinni. Verðlaunasögur grunnskólabarnanna í Grundarfirði verða lesnar upp af höfundum og við föndrum skemmtilegt hrekkjavökuskraut á meðan.
Kl. 20:00 - Hrekkjavökubíó í Sögumiðstöðinni fyrir eldri börn grunnskólans. Aldurstakmark 12 ára.
Föstudagurinn 30. október
Kl 16:00 - Bergrún Íris Sævarsdóttir mætir í Sögumiðstöðina og kennir krökkum teikna fígúrur og allskyns dýr. Rán er margverðlaunuð fyrir bækurnar sínar og myndskreytingar og því mikill fengur að fá hana. Viðburður miðaður við yngstu kynslóðina, leikskólabörn og þau sem yngst eru í grunnskólanum.
Kl .18:30 - Draugagangur í Grundarfirði, vel uppaldir draugar ráfa á milli húsa í forvitnilegum tilgangi og afhenda börnunum smá glaðning.
Kl. 20:00 - Hrekkjavökubíó í Bæringsstofu fyrir elstu kynslóðina (ætlað fullorðna fólkinu). Aldurstakmark 16 ára.
Laugardagurinn 31. október
Kl. 18:00 - Hrekkjavökuskógurinn opnar með tilþrifum. Á sama tíma hefst hápunktur hátíðarinnar sem er gangan sjálf hefst en þá ganga börnin í hús og bjóða grikk eða fá gott. Fyrirvari um breytingar á tímasetningu varða veðurguðina.

Aðrir viðburðir