Hótelgisting og tónleikar með KK
Hótelgisting og tónleikar með KK
Bókanir og nánari upplýsingar má nálgast á síðu Íslandshótela hér
Gisting fyrir tvo með morgunverði og aðgangur að einstökum tónleikum KK í Reykholtskirkju.
Einstakur viðburður í Reykholti þann 16.júní! Gistu á Fosshótel Reykholti og upplifðu KK leika sín þekktustu lög í Reykholtskirkju. Innifalið er gisting í eina nótt fyrir tvo ásamt morgunverði og aðgangur að tónleikunum. Tryggðu þér aðgang að þessum einstaka listviðburði. Þessir tónleikar verða aðeins í boði fyrir hótelgesti og því takmarkað framboð.
Njóttu þess að komast úr borginn í Borgarfjörðinn en Reykholt er aðeins um klukkutíma akstur frá Reykjavík.
Fosshótel Reykholt býður upp á glænýja heilsulind með útipottum, slökunarherbergi, sauna, eimbaði, setustofu og búningsklefum. Tilvalið að byrja sumarið snemma og gera sér dagamun.
Einstakt tilboð fyrir tvo á aðeins 28.900 kr.
- Tilboðið er í gildi til 16. júní 2021 og er afbókanlegt með 48 klst. fyrirvara.
- Verð miðast við standard double herbergi en aðrar herbergjatýpur einnig í boði.
- Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 í Reykholtskirkju.
- Ef tónleikar falla niður sökum breytinga á Covid reglum eða af öðrum ástæðum þá er endurgreitt að fullu.
- Til að bóka tilboðið í tvær samfelldar nætur er dvölin framlengd í dagatalinu í fyrsta bókunarskrefi.
- Þetta tilboð gildir ekki með öðrum tilboðum. Ekki er hægt að greiða gistingu með gjafabréfi.