Hafrannsóknir Rastar sjávarrannsóknaseturs - Opinn umræðufundur og samtal
Röst sjávarrannsóknasetur stendur fyrir opnum kynningarfundum um hafrannsóknir og rannsóknarverkefni á Hvalfjarðarsvæðinu. Fundirnir verða haldnir í Félagsgarði (Dreng) í Kjósarhreppi 28. september og í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit 30. september, báðir kl. 19:30. Á fundunum verður fjallað um fyrirhugaða vettvangsrannsókn sem snýr að samspili hafs og andrúmslofts og áhrifum aukinnar basavirkni sjávar á upptöku koldíoxíðs. Einnig verða kynntar fyrri rannsóknir setursins, rannsóknaráætlanir og þær breytingar sem gerðar hafa verið í kjölfar ábendinga frá nærsamfélaginu. Fundirnir eru opnir öllum áhugasömum og boðið verður upp á léttar veitingar.