Fara í efni

Fyrsta ganga FFSN: Söguganga í Berserkjahrauni

Til baka í viðburði
Hvenær
þriðjudagur, 14 júlí
Hvar
Klukkan
18:00-21:00

Fyrsta ganga FFSN: Söguganga í Berserkjahrauni

Þriðjudagskvöldið 14 júlí næstkomandi mun Jóhannes Eyberg bóndi á Hraunhálsi annast fyrstu göngu Ferðafélags Snæfellsness. Hittast klukkan 18:00 á ómerktu stæði milli Bjarnarhafnar og Hraunháls og mun Jóhannes sýna sumar af minna þekktum minjum í Hrauninu sem kunna að tengjast þrautum berserkjanna.
Um er að ræða létta göngu á þægilegum hraða sem hentar öllum. Alls má búast við um 3 km göngu með engri hækkun, en mælt er með góðum skóm með ökklastuðningi þar sem hluti göngunnar verður ekki á göngustígum. Að göngu lokinni verður boðið upp á létta hressingu á Hraunhálsi.
Gangan er ókeypis og opin öllum.

Aðrir viðburðir