Fara í efni

Fuglaskoðun á Hvanneyri: Blesgæsir

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 10 október
Hvar
Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri
Klukkan
09:00-12:00

Fuglaskoðun á Hvanneyri: Blesgæsir

Blesgæsir á túnum Hvanneyrar verða skoðaðar en allar aðrar fuglategundir að sjálfsögðu líka.

Hittumst laugardaginn 10. október kl. 9:00 hjá Landbúnaðarsafninu á Hvanneyri, rétt hjá kirkjunni, teljum þátttakendur og ræðumst við. Sameinumst í bíla og ökum Hvanneyrarhringinn – og notum bílana sem fuglaskoðunarhús.

Athugið að úr Reykjavík er um 1,5 klst. akstur á Hvanneyri.

Þegar blesgæsaskoðun lýkur eftir ca 2 klst. ökum við sem leið liggur í Borgarnes og fáum okkur hressingu á kaffihúsi. Að því loknu förum við og skönnum fjörur og leirur í kringum Borgarnes.

Að fuglaskoðun í Borgarnesi lokinni verður komið við á Flösinni á Akranesi, þar munum við líta eftir fuglum en háfjara verður um kl. 12:00 þennan dag þannig að það verður farið að flæða að þegar við komum.

Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir kl. 16. miðvikudag 7. október með því að senda póst á fuglavernd@fuglavernd.is. Gott er að skrá sig sem fyrst!

Þeir sem eiga ekki bíl fá far með einhverjum í hópnum, látið fylgja með skráningu hvort vantar far.

Hvanneyrarjörðin er innan Andakíls, svæðis sem er alþjóðlega mikilvægt fyrir blesgæsir.

Blesgæs verpur víða á norðlægum slóðum og skiptist í nokkra vel aðgreinda stofna. Fuglar sem verpa á V-Grænlandi eru sérstök deilitegund (Anser albifrons flavirostris) og hafa þeir viðdvöl á suðvestanverðu landinu vor og haust. Vetrarstöðvar þessara fugla eru á Bretlandseyjum og þá aðallega á Írlandi og í Skotlandi. Sjá nánar á heimasíðu Náttúfræðistofnunar

Á vef Náttúrverndarstofnunar er ágætis efni um blesgæsir t.a.m. hvernig hún þekkist frá öðrum gæsum og hvernig hljóð hún gefur frá sér.

Fararstjórar: Anna María Lind Geirsdóttir, starfsmaður skrifstofu Fuglaverndar og Vala Friðriksdóttir, líffræðingur og félagi í Fuglavernd.

Aðrir viðburðir