Fjölskylduviðburður og matarmarkaður á Laugum í Sælingsdal
Þann 23. ágúst verður matarmarkaður í tilefni af Beint frá býli deginum sem er nú haldinn fjórða árið í röð, á Laugum í Sælingsdal.
Þann dag munu heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur úr landshlutanum mæta að Laugum til að kynna og selja vörur sínar.
Dýragarðurinn á Hólum verður á staðnum, sundlaugin opin með veitingar til sölu og meira að segja hægt að fara með kaffi og ís út í pott.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga skemmtilegan dag saman!
- - - - -
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) eru samstarfsaðilar og styrkja viðburðinn.