Dagur Snorra Sturlusonar
Snorrastofa verður með hátíð helgaða Snorra Sturlusyni í bókhlöðu sinni laugardaginn 26. september nk.
Dagskráin, sem hefst kl. 14, verður tileinkuð goðafræði og sagnaskemmtan.
Fyrirlestrar:
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu: Setning og stutt samantekt um útgáfu ritraðar um norræna goðafræði.
Ingunn Ásdísardóttir, þjóðfræðingur: Af jötnum.
Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands: Um guði og hetjur í sagnaskemmtun miðalda.
Hlé
Terry Gunnell, þjóðfræðingur og prófessor emeritus: Hlutverk og vettvangur Völuspár fyrr og nú: Hvernig breytist kvæðið í flutningi?
Inn á milli verða sýnd myndbönd með áhugaverðum dæmum um miðlun á goðafræðinni, þ.e. brot úr sýningu Västanå teater á Eddu eftir Jon Fosse, flutningur Einar Selvik á broti úr Völuspá, og að lokum brot úr flutningi danska leikhópsins Republique á Völuspá.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Veitingar í hléi.