Fara í efni

Búverk og horfnir tímar - bókaspjall með Bjarna

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 12 nóvember
Hvar
Skemman - Hvanneyri
Klukkan
20:00-21:30

Búverk og horfnir tímar - bókaspjall með Bjarna

Nú er jólabókaflóðið farið af stað og ekki seinna vænna en að kíkja hvaða bækur koma út í ár sem tengjast sveitum, landbúnaði og landnýtingu. Við byrjum á bókaspjalli með Bjarna Guðmundssyni sem gaf út í sumar bókina Búverk og horfnir tímar. Við ætlum að hittast í Skemmunni, heyra nokkur orð höfundar um efnið og eiga notalega stund þann 12. nóvember.
Um bókina segir:
Bókin fjallar um verkfæri og verkhætti sem algengir voru fyrr á árum og fleira er tengist tæknivæðingu bústarfa og landbúnaðar. Flest af því er nú horfið eða hefur þróast að kröfum tímans.
Að sjálfsögðu verður í boði að kaupa bókina fyrir áhugasama og eru allir velkomnir! Frítt er á viðburðinn og frést hefur að safnstjórinn skelli jafnvel í eina sort!

Aðrir viðburðir