Fara í efni

Ásta og Gosi Akranesvita

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 26 febrúar
Hvar
Klukkan

Ásta og Gosi Akranesvita

Ásta og Gosi leiða saman tónelska hesta sína og halda í tónleikaferðalag um landið í febrúar og mars 2026. Þau hefja leika í hinum margrómaða Akranesvita sem er þekktur fyrir sinn einstaka hljómburð.
Á tónleikunum flytja þau lög af nýjustu breiðskífum sínum, Blokkarbarn og Á floti, ásamt eldra efni. Þetta verður kvöld þar sem tvær ólíkar raddir mætast á sama sviði og lögin fá að njóta sín í nánum og lifandi flutningi.
Ásta og Gosi búa bæði á Ísafirði og hafa verk þeirra hlotið ýmsar viðurkenningar, meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin og Kraumsverðlaunin.
Fimmtudagurinn 26. febrúar kl. 20:30
Miðaverð 3900kr
Selt inn við hurð.

Aðrir viðburðir