Fara í efni

Aleinn og óstuddur - Bjössi Thor í Vínstúkunni

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 16 júlí
Hvar
Narfeyrarstofa
Klukkan
21:00-22:30

Aleinn og óstuddur - Bjössi Thor í Vínstúkunni

Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikurum heims. Í þetta skipti kemur Bjössi fram aleinn og óstuddur og fer yfir gítarsöguna og spilar og jafnvel syngur, nokkur af sínum uppáhalds lögum sem hann lærði þegar hann var strákur t.d Hotel California, Stairway to heaven og fullt af bítlalögum. Það verða líka sagðar sögur sem vart þola dagsins ljós og verður ekkert dregið undan. Engin verður svikinn af tónleikum með Bjössa.

4.900 kr

Aðrir viðburðir