Að synda eða stökkva
Í Íslendingasögunum eru lýsingar á bardögum þar sem einstaklingar berjast á bátum á sjó en detta útbyrðis og þurfa að synda til að bjarga lífi sínu, eins og í Ólafs sögu Tryggvasonar, ellegar sökkva. Til að kynnast betur sögunum okkar efnum við því til keppni milli sundlauga í hringabrynjusundi til að komast að því hversu erfitt er að synda "milli skipa" í hringabrynju eins og Ólafur Tryggvason - frá einum bakka grunnu laugarinnar yfir á hinn.
Einnig verður hægt að prófa Grettis sund (þar sem keppendur synda með kyndil sem ekki má blotna) og Brákar sund (þar sem synt verður í fötum).
Sigurvegari keppninnar er sú sundlaug þar sem flestir ná að synda milli bakkanna í hverju sundi.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Sundlaugasumars 2026 en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.