Fara í efni

Valdimar og Örn á Sviðinu

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 31 ágúst
Hvar
Selfoss
Klukkan
21:00-23:30

Valdimar og Örn á Sviðinu

Valdimar verður með tónleika á Sviðinu þar sem hann flytur öll sín vinsælustu lög. Með honum í för er Örn Eldjárn Kristjánsson. Valdimar og Örn hafa undanfarin ár flutt dásamlega einlægt og hugljúft prógram við hin ýmsu tækifæri sem samanstendur af lögum sem Valdimar hefur sungið með hljómsveit sinni í bland við uppáhaldslög þeirra félaga.

Valdimar Guðmundsson hefur á síðustu árum haslað sér völl sem einn af ástsælustu söngvurum þjóðarinnar. Hann sló fyrst í gegn með plötunni Undraland með hljómsveit sinni, Valdimar og eftir það hefur hann sungið lög úr ýmsum áttum sem hafa ratað á vinsældarlista útvarpsstöðva landsins. Örn Eldjárn Kristjánsson hefur alla tíð sótt innblástur í náttúru Íslands. Hann hefur spilað á gítar og bassa með ýmsum hljómsveitum og tónlistarmönnum (Tilbury, Valdimar, Júníus Meyvant, Snorri Helgason o.fl.) í gegnum tíðina og samið tónlist frá unglingsaldri. Valdimar og Örn hafa undanfarin ár flutt dásamlega einlægt og hugljúft prógram við hin ýmsu tækifæri sem samanstendur af lögum sem Valdimar hefur sungið með hljómsveit sinni í bland við uppáhaldslög þeirra félaga.

https://svidid.is/vidburdur/valdimar-a-svidinu/

5.900 kr.

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll