Fara í efni

Urriðadans

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 4 október
Hvar
Valhöll, P5, Þingvellir
Klukkan
14:00-16:00

Urriðadans

Hinn árlegi Urriðadans í Öxará verður laugardaginn 4. október og hefst klukkan 14:00. Jóhannes Sturlaugsson hjá rannsóknafyrirtækinu Laxfiskum mun fræða gesti Þjóðgarðsins á Þingvöllum um urriðann í Þingvallvatni.
 
Kynningin hefst við bílastæði P5 þar sem Valhöll áður stóð. Þaðan er gengið meðfram ánni upp undir Drekkingarhyl þar sem risaurriðar og aðrir minni verða skoðaðir og fjallað um lífshætti þeirra.
 
Gert er ráð fyrir því að kynningin taki um eina og hálfa klukkustund og fá gestir tækifæri til að sjá risaurriðann í návígi og fræðast um þennan stórhöfðingja Þingvallavatns sem á hverju hausti gengur upp Öxará til hrygningar.

Jóhannes hefur haldið utan um vöktun á urriðanum í Þingvallavatni og aðra laxfiska víða um landið. Það er af nógum efnivið að taka enda er urriðinn og umhverfi hans að þróast hratt á þessum árum.

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll