Fara í efni

Tónlistarhátíðin Englar og menn í Strandarkirkju

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 9 júlí
Hvar
Strandarkirkja, Sveitarfélagið Ölfus, Southern Region, 816, Iceland
Klukkan
14:00-15:00

Tónlistarhátíðin Englar og menn í Strandarkirkju

,,Á meðan lífsins stundir tifa" er yfirskrift næstu tónleika í tónleikaröðinni Englar og menn í Strandarkirkju, sunnudaginn 9. júlí kl. 14.
Þar koma fram söngkonurnar Kristjana Arngrímsdóttir og Ösp Eldjárn ásamt Daníel Þorsteinssyni píanóleikara. 
 
Samstarf mæðgnanna Kristjönu Arngrímsdóttur og Aspar Eldjárn Kristjánsdóttur hófst fyrir alvöru árið 2005 þegar Kristjana gaf út plötuna Í húminu. Síðan þá hafa þær reglulega komið fram saman og er samhljómurinn þannig að erfitt að greina raddirnar í sundur. Þær eru báðar gefnar fyrir hið þjóðlega og tilfinningaríka og samanstendur dagskráin af sálmum, þjóðlögum og frumsömdum lögum. Píanóleikarinn og organistinn Daníel Þorsteinsson, sem einnig kemur fram á tónleikunum, hefur unnið náið með Kristjönu frá því hún hóf sóló ferilinn og hefur m.a ljáð þremur plötum hennar sinn einstaka hljóm.
 
Miðaverð er kr. 3.500 og miðasala er við innganginn.
Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlennskra sveitarfélaga, Tónlistarsjóði kirkjunnar og STEFs og Tónlistarsjóði.
 
Nánar um flytjendur:
Söngkonan Kristjana Arngrímsdóttir hóf söngferil sinn í Tjarnarkvartettinum ásamt með Kristjáni Eldjárn Hjartarsyni, eiginmanni sínum, Hjörleifi Hjartarsyni og Rósu Kristínu Baldursdóttur. Eftir að kvartettinn var leystur upp hóf Kristjana sólóferil sinn. Hún hefur fjölbreyttan tónlistarstíl, allt fá þjóðlögum og vísnalögum, sálmum, til sjóðandi heita tangóa og dægurlaga. Hún hefur haldið fjölmarga tónleika hér á landi og erlendis og gefið út fjóra sólóplötur.
Árið 2000 gaf Kristjana út sína fyrstu hljómplötu, Þvílík er ástin og hefur hann notið mikillar hylli fyrir sönggleði og vandaðan flutning. Á þeim diski fékk hún til liðs við sig þá Daníel Þorsteinsson, píanóleikara, Jón Rafnsson bassaleikara og Kristján Eldjárn Þórarinsson, gítarleikara. Árið 2005 kom diskurinn Í húminu út sem er undir sterkum dönskum áhrifum en Kristjana bjó í Danmörku í fimm ár. Þar leitar hún fanga í dönskum söngvasjóði, syngur lög eftir Carl Nielsen eitt þekktasta tónskáld Dana og Bjarne Haar. Vísur og sálmar eftir ýmis höfuðskál Dana, allt frá Grundtvig til Halfdan Rasmussen í nýrri þýðingu Böðvars Guðmundssonar og Kristjáns E. Hjartarsonar. Einnig er að finna íslenskar þjóðlaga og söngperlur. Með henni á þeim disk spila þeir Jón Rafnsson, bassa, Örn Eldjárn, gítar, Tatu Kantomaa, harmonikka, Hjörleifur Valsson, fiðla og Örnólfur Kristjánsson selló. Á þriðju plötu Kristjönu, Tangó fyrir lífið, sem kom út árið 2011, kveður við nýjan tón, seiðandi tangóar frá Argentínu ásamt íslenskum og frumsömdum lögum. Hér steig Kristjana fram sem lagahöfundur og tvö laga hennar má finna á plötunni. Árið 2014 kom jólaplatan, Stjarnanna fjöld, út. Titillag og texti plötunnar er eftir Kristjönu. Útsetningar Örn Eldjárn og gítarleikur, Ösp Eldjárn, söngur, Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla, Ella Vala Ármannsdóttir, horn, Petrea Óskarsdóttir, þverflauta Ásdís Arnardóttir, selló, Daníel Þorsteinsson, orgel, harmonikka, Páll Barna Szabo, fagott, Jón Rafnsson, kontrabassi, Frank Aarnink, ásláttur, Magnús Tryggvason Eliassen, trommur. Kristjana vinnur nú að sinni fimmtu útgáfu sem inniheldur hennar eigin tónsmíðar við eigin texta og annara og er hún væntanleg á þessu ári.
Ösp Eldjárn hóf snemma að syngja og var farin að koma fram með foreldrum sínum snemma á unglingsárum. Hún lagði stund á klassískan söng í Söngskóla Sigurðar Demetz og jazz söng við Tónlistarskóla FÍH. Árið 2009 stofnaði hún ásamt vinum sínum alþýðu og suðurríkja hljómsveitina Brother Grass sem átti góðu fylgi að fagna. Árið 2011 flutti Ösp til London þar sem hún stundaði tónlistarnám við London Centre of Contemporary Music og Institute of Contemporary Music Perfomance. Um það leyti fór hún að semja sín eigin lög og texta. Hún gaf út sína fyrstu sóló plötu, Tales from a poplar tree, árið 2017 og hlaut hún tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Ösp hefur haldið fjölda tónleika á Íslandi, bæði ein og með hljómsveitum sínum og komið fram víða í Bretlandi. Má þar nefna Cambridge Folk Festival, Festival No6 í Wales og Unamplifire Festival í London. Í upphafi ársins 2020 stofnaði hún ásamt systkinum sínum hljómsveitina Blood Harmony. Í júlí 2023 munu þau leggja land undir fót og halda í tónleikaferðalag til Bretlands þar sem þau munu meðal annars koma fram á nokkrum af virtustu tónlistarhátíðum þar í landi, svo sem Belladrum Festival, HebCelt Festival, Cambridge Folk Festival og Doune the rabbit hole.
Daníel Þorsteinsson er fæddur í Neskaupstað, hóf hann tónlistarnám sitt þar og nam
síðar við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Tónlistarskólann í Reykjavík. Feril sinn sem píanóleikari hóf hann samhliða námi við Sweelinck tónlistarháskólann í Amsterdam þaðan sem hann lauk DM prófi í píanóleik og kennslufræðum árið 1993.
Að loknu námi hefur Daníel starfað við tónlistarflutning af ýmsu tagi með fjölmörgum listamönnum og hópum, leikið inn á fjölda hljómdiska, stjórnað kórum og hljómsveitum, auk þess að sinna kennslu við Tónlistarskólann á Akureyri.
Með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur Daníel leikið reglulega auk þess að útsetja fyrir sveitina og stjórna SinfoniaNord í upptökum á kvikmyndatónlist.
Daníel hefur stundað tónsmíðar um árabil, haustið 2019 hóf hann MA nám í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands þaðan sem hann útskrifaðist í desember 2021.
Daníel nýtur nú listamannalauna frá íslenska ríkinu en hann verður staðartónskáld á tónlistarhátíðinni WindWorks í Norðri 23 sem fram fer á Norðurlandi í ágúst næstkomandi.
Daníel býr í Eyjafjarðarsveit.
3.500

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll