Fara í efni

Tónleikar Jónas Sig á Haustgildi 06.09.

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 6 september
Hvar
Stokkseyri
Klukkan
17:00-19:30

Tónleikar Jónas Sig á Haustgildi 06.09.

Jónas Sigurðursson mun mæta með hljómsveit og halda tónleika í Stokkseyrarkirkju á Haustgildi sunnudaginn 06.09. kl. 17. Markús & The Diversion Session hitar upp en þeir hafa verið að senda frá sér nýtt efni nýlega.

 

Jónas þarf vart að kynna. Hann kom fyrst fram á sjónarsvið íslenskrar tónlistar með hljómsveitinni Sólstrandagæjunum en svo skaut honum aftur upp á stjörnuhiminn þegar hann gaf frá sér plötuna Þar sem malbikið svífur mun ég dansa. Hún kom út 2007 og nokkrum árum seinna gaf hann út efni sem hann hafði unnið með lúðrasveit Þorlákshafnar, sínum heimabæ. Mögnuð textagerð og sterkar melódíur hafa verið einkennandi fyrir tónlist Jónasar sem nær að snerta streng í íslenskri þjóðarsál.

 

Markús Bjarnason hefur komið víða við í íslenskri tónlist. Hann hefur verið fararbroddi hljómsveita á borð við Sofandi og Skáta. Jafnframt hefur hann unnið að sínu sólóefni. Hljómsveitin hans Diversion Sessions hefur spilað með honum í ýmsum myndum í mörg ár. Núna er hljómsveitin að gefa út glænýtt efni sem hefur fengið góðar viðtökur hjá hlustendum.

4.900

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll