Fara í efni

Regnboginn - List í fögru umhverfi

Til baka í viðburði
Hvenær
9.-11. október
Hvar
Vik, Vík
Klukkan
09:00-20:00

Regnboginn - List í fögru umhverfi

Regnboginn - list í fögrum umhverfi er menningarhátíð eða menningarveisla okkar Mýrdælinga sem haldin er aðra helgi októbermánaðar ár hvert.

Upphaflega hugmyndin að Menningarveislunni var að Mýrdælingar sameinuðust í að koma á fót fjölbreyttri menningardagskrá, sem íbúum og gestum væri boðið að upplifa í fögru umhverfi Víkur. Með sameiginlegu átaki einstaklinga, fyrirtækja og stofnana var hægt búa til metnaðarfulla og ævintýralega dagskrá sem vekur athygli á umhverfi, sögu og mannlífi í Vík og nágrenni, en hefði einnig það hlutverk að hvetja til tengsla og vera jarðvegur fyrir frjóar hugmyndir til eflingar samfélaginu og til yndisauka fyrir íbúa.

Regnboginn- list í fögru umhverfi, er samstarfsverkefni Menningarmálanefndar Mýrdalshrepps, Grunnskóla Mýrdalshrepps, Tónskóla Mýrdælinga, sóknarnefndar Víkursóknar og fyrirtækja í hreppnum.

Regnbogahátíðin skipar orðin stóran sess í lífi Mýrdælinga, haldin aðra helgina í október. Hátíðin er menningarhátíð og hafa fjölbreyttir viðburðir verið í gangi alla helgina þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi.

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll