Fara í efni

Plokk með Plokkvinafélagi Zo-On á Selfossi

Til baka í viðburði
Hvenær
þriðjudagur, 25 ágúst
Hvar
Larsenstræti 2
Klukkan
17:00-18:00

Plokk með Plokkvinafélagi Zo-On á Selfossi

Plokkvinafélag Zo•On á Selfossi var stofnað vorið 2026 og býður öllum sem hafa áhuga á að koma með að plokka þriðjudaginn 25. ágúst kl 17-18.

Hópurinn hittist í verslun Emil&Lína og Zo•On við Larsenstræti og gengur þaðan í fylgd formanns félagsins, Elínar Birnu, en Elín er þaulvanur plokkari og leiðir hópinn að góðu plokksvæði. Engin skráning nauðsynleg og allir eru velkomnir, en við hvetjum fólk til að gerast meðlimir í hópnum okkar hér að neðan og fylgjast með framvindu félagsins🥰
 
Við hvetjum foreldra sérstaklega til að mæta með börnin með sér og nýta tækifærið í samveru utandyra, og til að kenna börnunum mikilvægi þess að hugsa vel um umhverfið okkar.❤️
 
Tínur og pokar verða á staðnum fyrir alla þátttakendur.
 
Hreinsum umhverfið fyrir okkur og samfélagið allt, hugum að náttúrunni og höfum gaman saman🙏🏼🌿

 

Frekari upplýsingar má finna hér: https://fb.me/e/6rIge6z4P

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll