Fara í efni

Hvaða sögu segja fornleifar Þingvalla?

Til baka í viðburði
Hvenær
sunnudagur, 27 september
Hvar
Gestastofa Hak, Þingvellir
Klukkan
13:00-15:00

Hvaða sögu segja fornleifar Þingvalla?

Þingvellir til forna: þinghald, búseta og mannlíf

Í göngunni, sem leidd verður af Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðingi, verður farið með gesti um Þingvelli. Fornleifar verða skoðaðar sem varpa ljósi á þinghald, búsetu og daglegt líf fólks á staðnum til forna.

Minjarnar geyma sögu þeirra sem dvöldu, störfuðu og bjuggu á Þingvöllum í gegnum aldirnar. Fjallað verður um það sem fornleifarnar hafa leitt í ljós, en einnig það sem enn er hulið.
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur hefur rannasakað og haldið utan um skráningu fornleifa á Þingvöllum í meira en áratug.

Gangan hefst klukkan 13:00 við gestastofu á Haki og tekur ríflega tvær klukkustundir.
 
Gangan mun leiða gesti að munni Hestagjár og þaðan að Lögbergi. Frá Lögbergi verður farið til suðurs eftir búðastíg í átt að Valhöll. Þar má enn glöggt sjá í fjölda búðatófta þingstaðarins.

Margrét mun því næst fara með okkur að Miðmundartúni þar sem á sjötta áratugnum fannst tábagall/tákross. Á þessu svæði eru þó ekki öll kuml komin enn til grafar og mun Margrét segja frekar frá því hvað þarna getur leynst.

Gangan endar því næst formlega við Þingvallakirkju en Margrét leiddi þar fornleifauppgröft fyrir nær 15 árum síðan og fann ýmislegt forvitnilegt.

 

Gangan er partur af evrópskum menningarminjadögum

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll