Fara í efni

Gönguferð út í Salthöfða & Húskveðja á Fagurhólsmýri

Til baka í viðburði
Hvenær
laugardagur, 28 maí
Hvar
Fagurhómsmýri
Klukkan
14:00-18:00

Gönguferð út í Salthöfða & Húskveðja á Fagurhólsmýri

Listakonan Eva Bjarnadóttir leiðir göngu frá Gömlubúðinni á Fagurhólsmýri út í Salthöfðann. Á leiðinni verða sagðar sögur, lesin ljóð og ýmsir gestir koma við. Athugið að gangan er skemmtileg en ekki endilega auðveld.
 
Klukkan 16:30 er haldin húskveðja í Gömlubúðinni, gjörningur með tónlistarívafi. Ekki þarf að mæta í gönguna til að fá að fara á gjörninginn.
 
Steinunn Björg Ólafsdóttir, Einar Bjartur Egilsson, Gunnlaugur Bjarnason og María Sól Ingólfsdóttir munu flytja texta og syngja á húskveðjunni.

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll