Fornleifaskóli barnanna
Markmið fornleifaskólans er að kynna krakkana fyrir fornleifarannsóknum og leyfa þeim að grafa eins og „alvöru fornleifafræðingar“ eða þar um bil.
Notast er við múrskeiðar til að skafa upp mold og grafa upp ýmsa „forngripi“.
Uppgraftarreitnum er svo hagað að hann líkist þingbúð sem hentar vel þar sem gestirnir verða í næsta nágrenni við helsta fornleifasvæðið.
Í lokin fá þáttakendur viðurkenningarskjal um að hafa lokið fornleifaskóla barnanna á Þingvöllum.
Fornleifaskólinn er opinn öllum og þáttaka er ókeypis.
Fornleifaskólinn byrjar 14:00 og lýkur 16:00. Allajafna verja börn um 30 mínútum í að grafa og teikna upp hluti sem þau finna.
Fornleifaskólinn byrjar 14:00 og lýkur 16:00. Allajafna verja börn um 30 mínútum í að grafa og teikna upp hluti sem þau finna.