Fara í efni

Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Árin fyrir endalokin: Alþingi á Þingvöllum á 18. öld.

Til baka í viðburði
Hvenær
fimmtudagur, 16 júlí
Hvar
Gestastofa Hak, Þingvellir
Klukkan
20:00-21:30

Fimmtudagskvöld á Þingvöllum - Árin fyrir endalokin: Alþingi á Þingvöllum á 18. öld.

Þetta fimmtudagskvöld mun Margrét Gunnarsdóttir, sagnfræðingur, segja frá hugmyndum um gildi Alþingis á Þingvöllum þegar nútíminn var að taka á sig mynd á síðustu áratugum átjándu aldar.

Á þeim tíma var farið fögrum orðum um þinghald Alþingis og arfleifð þess í ýmsum ritum sem komu út á vegum dönsku krúnunnar. Þó að mikilvægi Alþingis væri hampað utanlands fór það þó svo að síðast var komið saman á Alþingi á Þingvöllum, sem á átjándu öld var til dómsstarfa, sumarið 1798.

Praktískar ástæður lágu fyrir endalokum þingstarfa og í huga sumra var það sorglegur endir á langri og glæstri sögu. Jónas Hallgrímsson orti þannig með trega í kvæðinu „Ísland“ um hvernig umhorfs var á Þingvöllum þegar „alþing er horfið á braut“.
Gangan hefst við gestastofu þjóðgarðsins á Haki kl. 20:00, 16. júlí og tekur rúma klukkustund. Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis

Aðrir viðburðir

28. maí - 28. maí

Fimmtudagsfjör í Gamla fjósinu

Gamla fjósið
5.- 6. jún

Hengill Ultra 2020

5.- 7. jún

Námskeið hjá Glacier Adventure - Jökla 2 & 3

Glacier Adventure, Höfn í Hornafirði
5.- 7. jún

Fjallaskíðamót

Kerlingarfjöll