Fell, flóra og firnindi - Undraheimur Þingvallavatns
Undraheimur Þingvallavatns er fræðsluganga með Finni Ingimarssyni landverði og líffræðingi. Finnur mun leiða gesti um þann undraheim sem norðurstrandlengja Þingvallavatns hefur upp á að bjóða.
Gengið er frá Vatnskoti meðfram vatnsbakkanum. Fræðst er um dýralíf ásamt þeirri flóru sem má sjá á landi og vatni.
Hittingur er við bílastæðið að Vatnskoti klukkan 14:00 og er gangan öllum opin og ókeypis. Gott er að mæta vel skóaður og með nesti.